Innlent

Alhvít jörð á Akureyri

Alhvítt er á Akureyri eftir snjómuggu í bænum í alla nótt. Þar er því hálka nú í morgunsárið.

Skíðafólk fagnar hinsvegar hverju korni sem bætist í snjóinn í Hlíðarfjalli, þar sem þegar er búið að gera göngubraut. Snjóframleiðslubyssurnar eru líka komnar á sinn stað og er nú beðið eftir heldur meiri snjó og meira frosti til að geta hafið snjóframleilðslu fyrir alvöru.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×