Innlent

Víða slæmt verður á miðunum

Víða  er slæmt veður á miðunum umhverfis landið og innan við hundrað fiskiskip á sjó. Þar af eru sum í vari og spáð er stormi á öllum miðum nema Suðausturmiðum og Færeyjadjúpi.

Annars er spáð norðaustan hvassviðri, allt að 20 metrum á sekúndu á landinu í dag, og að hvassast verði á norðvestanverðu landinu, en hægari suðaustanlands. Snjókoma eða éljagangur verða norðvestantil og svo fer að rigna á höfuðborgarsvæðinu í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×