Innlent

Hirtu haglabyssur af rjúpnaskyttu

Mennirnir ætluðu á rjúpnaskytterí.
Mennirnir ætluðu á rjúpnaskytterí.
Lögreglan í Borgarfirði og Dölum hafði tal af tveimur rjúpnaskyttum á Skógarströnd í Dölum um liðna helgi, sem voru að koma úr Sátunni á tveimur fjórhjólum samkvæmt fréttavefnum Skessuhorn.is.

Þar segir að ekkert aðfinnsluvert hafi verið að finna hjá annarri skyttunni, en hin var með tvær haglabyssur og voru þær haldlagðar þar sem sá hinn sami var ekki skráður fyrir þeim.

Einnig á annar maðurinn von á kæru vegna aksturs á torfæruhjóli á vegi um veiðislóð, en á slíkum tækjum má ekki fara til veiða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×