Innlent

Rannsóknarnefnd kaþólskra óskar eftir upplýsingum um kynferðisbrot

Mynd/Valli
Rannsóknarnefnd kaþólsku kirkjunnar á Íslandi óskar nú eftir því að þeir sem telja sig eiga erindi við nefndina í tengslum við ásakanir um kynferðisbrot eða önnur ofbeldisbrot unnin af kirkjunnar mönnum.

Nefndin var skipuð af forseta lagadeildar í ágúst að beiðni biskups og hefur hún það hlutverk að rannsaka viðbrögð og starfshætti kaþólsku kirkjunnar á Íslandi vegna slíkra ásakana. Nefndinni er ætlað að leggja mat á hvort mistök, vanræksla eða vísvitandi þöggun eða tilraun til þöggunar hafi átt sér stað eftir að ábendingar um brot hafa komið fram og hver beri ábyrgð á því. Nefndin hefur unnið að gagnaöflun en er nú tilbúin til að taka við ábendingum og ræða við alla þá sem telja sig eiga erindi við hana.

Þeir sem vilja hafa samband við nefndina eru beðnir um að senda tölvupóst á netfangið rannsoknkk@gmail.com eða senda bréf til Rannsóknarnefndar kaþólsku kirkjunnar í pósthólf nr. 5, 121 Reykjavík, fyrir 1. desember 2011. Nefndin er bundin þagnarskyldu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×