Barði og hótaði að drepa barnsmóður sína 2. nóvember 2011 20:24 Mynd tengist frétt ekki beint mynd úr safni
Karlmaður var dæmdur í sex mánaða fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag fyrir að hafa beitt þáverandi sambýliskonu og barnsmóður sína ofbeldi og hótað henni lífláti. Maðurinn var ákærður fyrir að hafa í september á síðasta ári ráðist að konunni á heimili þeirra í Reykjavík, rifið í hár hennar svo hún féll í gólfið og í framhaldinu sparkað einu sinni hægra megin í brjóstkassa hennar. Þá var hann ákærður fyrir að hafa í október sama ár fyrst á heimili þeirra slegið hana hnefahöggi í andlitið og síðar sömu nótt hótað að drepa hana og ógnað henni með hníf í Heiðmörk og rekið hnífinn í hægri hendi hennar. Við yfirheyrslu hjá lögreglu sagði konan að maðurinn hefið lengi beitt sig ofbeldi, auk þess að vera ráðríkur og stjórnsamur. Um atvikið í ákæru þegar maðurinn er sagður hafa sparkað í maga hennar er haft eftir henni í vottorði á slysadeild, aðnn hafi sagt að það myndi verða meira að gert ef ekki væri sonur þeirra á heimilinu í næsta herbergi. Konan ætlaði að flytja af heimilinu smátt og smátt og var búin að leigja sér íbúð. Þegar hún var sofnuð eitt kvöldið fann maðurinn leigusamning um nýju íbúðina í ferðatösku hennar. Í framburði konunnar kemur fram að hann hafi brugðist illa við og vakið hana og slegið hana hnefahöggi á hægri kinn. „Eftir það hefði hann neytt hana til að klæðast og koma með sér í nýju íbúðina. Þar hefði hann látið þau orð falla að hún væri of stór fyrir hana og hún hlyti að ætla að flytja þangað með öðrum manni. Hann hefði síðan neitt sig til að bera töskurnar út í bíl og ekið síðan með sig út fyrir borgina." Hann hafi síðan farið með hana upp í Heiðmrök og rifið hana út í bílnum og hótað henni lífláti með hníf. Við yfirheyrslu hjá lögreglu kannaðist maðurinn að hafa farið með konunni í íbúðina um miðja nótt. Hann sagðist vera mjög ósáttur við að hún væri að leigja íbúð án hans vitundar. Hann neitaði að hafa hótað henni eða ógnað með hnífi og neitaði því að hafa farið með hana í Heiðmörk. „Þau hefðu setið í bílnum og ræðst við, meðal annars um heimilisofbeldi almennt." Maðurinn neitaði sök við þingfestingu málsins og í aðalmeðferðinni lýsti hann því yfir að hann myndi ekki svara spurningum heldur vísaði til þess sem hann hafði borið hjá lögreglu - þar hefði hann sagt allt sem hann hefði um málið að segja. Maðurinn var sakfelldur fyrir fyrri árásina á heimili þeirra og það ofbeldi sem hann beitti hana í Heiðmörk, fyrir utan að hafa rekið hníf í konuna. Hann var dæmdur í 6 mánaða fangelsi og til að greiða konunni 600 þúsund krónur í miskabætur.
Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Ný nefnd hefur náðað þrjá Innlent Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Erlent Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Innlent Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Erlent Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Erlent Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Innlent Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Innlent Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Innlent Fleiri fréttir Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Sjá meira