Innlent

Lögðu hald á 2600 lítra af áfengi

LVP skrifar
Tollurinn lagði hald á 2600 lítra af áfengi á síðasta ári og 150 þúsund sígarettur. Áætlað er að það séu aðeins um tíu prósent af því sem reynt er að smygla til landsins.

Hluti af verkefnum Tollgæslunnar er að leita að smygli um borð í skipum. Allt upp í tíu tollverðir geta tekið þátt í slíkum leitum. Þær geta verið umfangsmiklar og þurfa tollverðir að undirbúa sig vel.

Áfengi og tóbak er sá smyglvarningur sem algengast er að tollgæslan leggi hald á um borð í skipum. Tollgæslan lagði á síðasta ári hald á 2600 lítra af áfengi á landinu öllu og 150 þúsund sígarettur á landinu öllu. Hún telur þó að það sé aðeins lítill hluti af því sem reynt er að smygla til landsins eða um 10%.

Það þýðir að um 26.000 lítrum af áfengi gæti verið smyglað til landsins á ári hverju og 1.500.000 sígarettarettum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×