Segjast ekki umbera vændi - óska eftir viðræðum við Stóru systur 21. október 2011 15:19
Eigendur vefsíðunnar einkamál.is, sem legið hefur undir ámæli frá aðgerðahópnum Stóru systur vegna meintra vændisauglýsinga, segja að vændi sé ekki liðið á síðunni. Í tilkynningu frá fyrirtækinu segir að stórfé hafi verið kostað til að vinna gegn vændi með því að þróa hugbúnað og með því að vera með starfskrafta sem vinna við að yfirfara og leita uppi vændisauglýsingar. „Skiptir þá engu hvort viðkomandi býður eða leitar eftir vændi, lokað er á viðkomandi notendur." Þá segir að forsvarsmenn Einkamál.is séu tilbúnir að ræða við „Stóru systur" hvað þær vilja sjá til úrbóta á vefnum. „Um leið eru þær hvattar til að láta af því að hvetja til ólöglegs athæfis á stefnumótasíðunni enkamál.is". Þá er áréttað að einkamál.is geti ekki borið ábyrgð á persónulegum samskiptum milli einstaklinga á vefnum. „Hvað þó heldur samskiptum sem færast af Einkamál.is yfir á aðrar þjónustur svo sem Facebook, MSN eða álíka þjónustur. Rétt eins og símafyrirtækjum er ekki heimilt að hlera öll símtöl, teljum við okkur ekki hafa heimild til að lesa öll samskipti milli fullorðinna einstaklinga." Ennfremur segir að einkamál.is hafi átt í mjög góðu samstarfi við lögregluna og meðal annars aðstoðað við að upplýsa mál. „Vefurinn mun halda áfram því samstarfi og auka það eins og lögreglan óskar,“ segir einnig um leið og þess er getið að vefsíðan hafi einnig rætt við Stígamót og óskað eftir góðu samstarfi.
Mest lesið Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Innlent Bilun hjá Teya veldur löngum röðum Innlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Innlent Segir ljóst að málið verði Lindsay Clancy dýrkeypt Erlent Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Innlent Lögreglan í Kaupmannahöfn stendur í ströngu Erlent „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ Innlent Hátt í áttatíu eftirskjálftar Innlent Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Innlent Fleiri fréttir Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya veldur löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Fella niður gatnagerðargjald vegna bílakjallara Næstum allar ábendingarnar um Áfram Ísland Segir borgina vinda ofan af „langvarandi rugli og vitleysu“ Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Myndbönd af banaslysinu í dreifingu og kvartanir vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar Langreyðarkvótinn mun tæplega nást Fylgdarakstur um Hvalfjarðargöng að næturlagi í næstu viku Sjá meira