Innlent

Endurtaka þarf atkvæðagreiðslu hjá Samfylkingunni

Tæknilegir ágallar komu fram við talningu atkvæða til flokksstjórnar í Samfylkingunni á landsfundi flokksins um helgina, þannig að það verður að endurtaka hana.

Á vef Samfylkingarinnar segir að kjörstjórn hafi úrskurðað atkvæðagreiðsluna ógilda og ákveðið að endurtaka hana. Þeir einir hafi atkvæðisrétt sm greitt hafi atkvæði á fundinum og þeir sömu verði í kjöri og áður.

Kjörstjórnin leggur til við framkvæmdastjórn flokksins að atkvæðagreiðslan verði skrifleg og að atkvæðin verði send í pósti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×