Innlent

Starfsmenn komu í veg fyrir eldsvoða

Starfsmönnum í vörumiðstöð Samskipa vð Kjalarvog í Reykjavík tókst með snarræði að slökkva eld sem kviknaði í rafmótor við loftræstikerfi í húsinu í gærkvöldi.

Þegar slökkvilið kom á vettvang var eldurinn útdauður en nokkur reykur hafði borist um húsnæðið frá mótornum.

Þá var slökkviliðinu tilkynnt um reyk frá íbúðahúsi við Kleppsveg, en reykurinn reyndist koma úr arni í húsinu og var engin hætta á ferðum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×