Innlent

Unglingar teknir á stolnum bíl

Myndin tengist fréttinni ekki beint.
Myndin tengist fréttinni ekki beint. Mynd/Hari
Lögreglan handtók um helgina tvo unglingspilta í Arnarnesi í Garðabæ. Lögreglan hafði veitt stolnum fólksbíl eftirför frá Hafnarfjarðarvegi og þegar bíllinn var stöðvaður kom í ljós að ökumaðurinn reyndist vera 16 ára gamall. Félagi hans, ári yngri, sat í framsætinu.

Piltarnir voru allsgáðir en þeir hafa alloft áður komið við sögu hjá lögreglu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×