Innlent

Lögreglan stöðvaði kokteilpartí á hjólum

Lögreglumenn stöðvuðu í nótt heilt kokteilpartí á hjólum,  á mótum Hafravatnsvegar og Suðurlandsvegar.

Þar voru á ferðinni fimm ungmenni sem fyrr um nóttina höfðu brotist inn í veitingahúsið Hafið bláa við ströndina, vestur af Eyrarbakka, og stolið töluverðu magni af áfengi. Síðan var slegið upp hópdrykkju, sem stóð þartil lögregla stöðvaði leikinn og lagði hald á afganginn af víninu.

Einn var vistaður í fangageymslu á Selfossi, en þar með var orðinn húsfyllir þar, þannig að hinir fjórir voru vistaðir í Reykjavík.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×