Innlent

Ofurölvi í árekstri

Ofurölvi karlmaður ók bíl sínum gegn rauðu ljósi á gatnamótum í Kópavogi á fjórða tímanum í nótt, þvert á annan bíl, sem var að aka þar yfir á grænu ljósi.

Þrátt fyrir harðan árekstur, slasaðist engin, en báðir bílarnir voru óökufærir á eftir og þurfti að fjárlægja þá með kranabíl.

Að sögn lögreglu var maðurinn, sem olli árekstrinum, óvenju mikið drukkinn. Annar var tekinn úr umferð í Reykjavík í nótt vegna ölvunaraksturs, en hann hafði ekki valdið skaða þegar hann var stöðvaður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×