Þingeyingar ósáttir með svör Steingríms og gengu út 14. október 2011 10:53
Fulltrúar fjögurra sveitarfélaga í Þingeyjarsýslum gengu í gær út af fundi á fjármálaráðstefnu sveitarfélaga sem nú stendur yfir. Ástæða þess að þeir fóru út úr salnum voru orð Steingríms J. Sigfússonar fjármálaráðherra sem var að svara fyrirspurn um atvinnumál í Þingeyjarsýslum. Þeir sem gengu út voru fulltrúar Norðurþings, Þingeyjarsveitar, Langanesbyggðar og Skútustaðahrepps. Guðný Sverrisdóttir oddviti Grýtubakkahrepps hafði spurt Steingrím um efndir á loforðum um atvinnuuppbyggingu í Þingeyjarsýslum. Steingrímur svaraði því til að óraunsætt væri að ætla sér að byggja 360 þúsund tonna álver á svæðinu. Til þess þyrfti að virkja Skjálfandafljót. Ónefndur sveitarstjórnarmaður sem fréttastofa ræddi við á fundinum lýsti því sem svo að Steingrímur hefði í raun „drullað" yfir Þingeyinga með svari sínu. Gunnlaugur Stefánsson, forseti bæjarstjórnar Norðurþings, og einn þeirra sem gengu af fundi, sagðist ekki vita hvað Steingrímur ætti við með 360 þúsund tonna álveri. Viljayfirlýsing sem samþykkt hafi verið á sínum tíma geri ráð fyrir 250 þúsund tonna álveri. Þá séu engir að tala um að virkja eigi Skjálfandafljót nema Vinstri grænir. Gunnlaugur segir að þegar hann hafi heyrt fjármálaráðherrann tala á þessum nótum hafi hann ákveðið að ganga út. Guðrún María Valgeirsdóttir, sveitarstjóri Skútustaðahrepps, sem einnig yfirgaf fundinn, sagði að þau orð, sem fjármálaráðherrann viðhafði, hefðu verið mjög ósanngjörn og ómakleg. Hann hefði með ummælum sínum gengið yfir strikið.
Mest lesið Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Erlent Berserksgangur á gististað Innlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Erlent Fleiri fréttir Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Sjá meira