Mótmæla fyrirhugaðri lokun líknardeildar 14. október 2011 15:50 Mynd/GVA
Starfsfólk Líknardeildar aldraðra á Landspítala Landakoti mótmælir harðlega fyrirhugaðri lokun á líknardeildinni. Í yfirlýsingu frá starfsfólki er lýst yfir miklum vonbrigðum með þá ákvörðun og þungum áhyggjum skjólstæðingum. Því er skorað á ráðamenn að draga úr niðurskurði gagnvart Landspítala og að þeir beiti sér fyrir því að líknarþjónusta við aldraða á Landspítala verði ekki skert. „Líknardeild aldraðra á Landspítala Landakoti var formlega opnuð 26. október 2001 með dyggum stuðningi frá Framkvæmdasjóði aldraðra, Kvennadeild Reykjavíkurdeildar Rauða kross Íslands og Styrktarsjóði Landakotsspítala. Undirbúningur að stofnun deildarinnar spannaði nokkur ár en frá árinu 1991 hafði verið unnið samkvæmt leiðbeiningum um takmörkun meðferðar við lífslok á öldrunarsviði. Mikið grasrótarstarf var unnið næstu árin og á árunum 1998 til 2001 voru að jafnaði 2-4 legupláss frátekin til líknarmeðferðar á einni af öldrunarlækningadeildunum Landspítala á Landakoti. Eftir því sem fram liðu stundir kom betur og betur í ljós að fleiri legupláss vantaði fyrir sjúklinga með lífsógnandi sjúkdóma, það er sérhæfða deild þar sem unnt væri að veita líknarmeðferð á skipulagðan og sérhæfðan hátt samkvæmt bestu þekkingu á hverjum tíma. Aldraðir veikir einstaklingar eru sjúklingahópur með flókna sjúkdómsmynd og iðulega með sértækar hjúkrunarþarfir, skerta líkamlega færni og vitræna getu,“ segir ennfremur. Þá er bent á að öldruðum sé að fjölga hlutfallslega og meðalaldur að hækka. „Með hækkuðum aldri aukast líkurnar á krabbameinum og öðrum lífsógnandi sjúkdómum með þungbær einkenni. Samkvæmt tölum frá Þjóðarstofnunar Bandaríkjanna (National Cancer Institute) á sviði krabbameina eru 65 ára og eldri 10 sinnum líklegri til að fá krabbamein og 15 sinnum líklegri til að deyja úr krabbameini en þeir sem eru yngri en 65 ára en flestir þeirra sem lagst hafa inn á líknardeild aldraðra hafa haft krabbamein.“ „Við lýsum furðu okkar og áhyggjum yfir þeirri ákvörðun að skerða þessa sérhæfðu, flóknu og viðkvæmu þjónustu sem hefur verið byggð upp sl. 10-13 ár og er það hörð aðför að þjónustu við sjúka aldraða einstaklinga sem hafa búið heima og hafa þunga einkennabyrði. Skerðing á þessari líknarþjónustu hefur keðjuverkandi áhrif á starfsemi fjölda deilda, eins og hjarta-, lungna- og krabbameinslækningadeildar en fyrst og síðast höfum við áhyggjur af hinum öldruðu einstaklingum sem eru í þörf fyrir sérhæfða einkennameðferð og umönnun.“
Mest lesið Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Innlent Bilun hjá Teya veldur löngum röðum Innlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Innlent Segir ljóst að málið verði Lindsay Clancy dýrkeypt Erlent Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Innlent Lögreglan í Kaupmannahöfn stendur í ströngu Erlent „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ Innlent Hátt í áttatíu eftirskjálftar Innlent Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Innlent Fleiri fréttir Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya veldur löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Fella niður gatnagerðargjald vegna bílakjallara Næstum allar ábendingarnar um Áfram Ísland Segir borgina vinda ofan af „langvarandi rugli og vitleysu“ Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Myndbönd af banaslysinu í dreifingu og kvartanir vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar Langreyðarkvótinn mun tæplega nást Fylgdarakstur um Hvalfjarðargöng að næturlagi í næstu viku Sjá meira