Hugmyndir um heilsulaugar við Perluna 14. október 2011 18:40
Náttúrulegar heilsulaugar með heitum gufum og vaðlaugum í jaðri Perlunnar eru meðal hugmynda sem áhugasamir kaupendur á eigninni íhuga nú en tilboðsfrestur í eignina rennur út á þriðjudag. Perlan var auglýst til sölu í byrjun september en hún er eitt helsta kennileiti Reykjavíkurborgar og ómissandi þáttur í heimsókn erlendra ferðamanna til landsins. Tilboðsfresturinn rennur út næstkomandi þriðjudag og hafa margar hugmyndir verið uppi um hvað nýir eigendur gætu ætlað sér að gera við húsið og lóðina en meðal þeirra er spilavíti eða bílasala. Fréttastofa hefur hinsvegar undir höndum gögn sem sýna uppkast af einni þeirra hugmynda sem upp hafa sprottið um hugsanlega nýtingu Perlunnar á meðal áhugasamra kaupanda. Samkvæmt gögnum fréttastofu eru hugmyndir um að setja upp heilsulaugar sem byggjast á náttúrulegum heitum laugum við rætur Perlunnar. Laugarnar yrðu frábrugðnar hefðbundnum sundlaugum með áherslu á íslenska náttúru, útsýni og fegurð Reykjavíkur og Perlunnar. Hugmyndin er ekki langsótt, en í tönkunum við Perluna er að finna heitt vatn Reykjavíkurborgar og myndu laugarnar byggjast upp á heitum gufum og vaðlaugum sem yrðu byggðar úr íslensku grjóti í anda náttúru landsins. Ef þessar hugmyndir ná fram að ganga er ljóst að húsið yrði áfram til notkunar fyrir ferðamenn sem útsýnisstaður og veitingarekstur. Þá gerir staðsetning eignarinnar og fjöldi heimsókna heilsulaugarnar að ferðmannaparadís, rétt við flest hótel.
Mest lesið Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Innlent Bilun hjá Teya veldur löngum röðum Innlent Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Innlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Segir ljóst að málið verði Lindsay Clancy dýrkeypt Erlent Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Innlent „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ Innlent Lögreglan í Kaupmannahöfn stendur í ströngu Erlent Hátt í áttatíu eftirskjálftar Innlent Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Innlent Fleiri fréttir Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya veldur löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Fella niður gatnagerðargjald vegna bílakjallara Næstum allar ábendingarnar um Áfram Ísland Segir borgina vinda ofan af „langvarandi rugli og vitleysu“ Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Myndbönd af banaslysinu í dreifingu og kvartanir vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar Langreyðarkvótinn mun tæplega nást Fylgdarakstur um Hvalfjarðargöng að næturlagi í næstu viku Sjá meira