Innlent

Höfði opinn almenningi

Frá leiðtogafundinum
Frá leiðtogafundinum
Borgarstjórn Reykjavíkur samþykkti á fundi sínum í dag að Höfði við Borgartún verði hafður almenningi til sýnis með reglubundnum hætti. Útbúið verði efni, miðað við þarfir ferðamanna, með upplýsingum um sögu hússins þar sem hlutverki þess í fundi leiðtoga Bandaríkjanna og Sovétríkjanna árið 1986 verði m.a. gerð góð skil. Sérstök áhersla verði lögð á að vernda húsið og láta það halda svipmóti sínu og virðuleika þrátt fyrir aukna notkun. Innheimtur verði aðgangseyrir, sem standa skal undir kostnaði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×