Almenningur klofinn í afstöðu til sjúkrahúsbyggingar 6. október 2011 10:59
Skiptar skoðanir virðast vera á meðal almennings um fyrirhugaða byggingu sjúkrahúss við Hringbraut, en um helmingur þeirra sem tekur afstöðu til þess hvort framkvæmdin sé slæm ráðstöfun á skattfé telur svo vera. Könnunin var framkvæmd af MMR og tóku áttatíu prósent aðspurðra afstöðu í málinu. 51,1 prósent telur að framkvæmdin sé slæm ráðstöfun á skattfé en 48,9 prósent telja svo ekki vera. Spurt var: „Telur þú að bygging nýs hátæknisjúkrahúss sé góð ráðstöfun á skattfé?" „Samkvæmt könnuninni var nokkur munur á afstöðu fólks til þess hvort bygging nýs hátæknisjúkrahúss væri góð ráðstöfun á skattfé eftir hópum,“ segir í tilkynningu frá MMR. „Af þeim sem tóku afstöðu voru konur jákvæðari gagnvart ráðstöfun skattfjár til byggingar nýs hátæknisjúkrahúss en karlar en 52,2% kvenna töldu byggingu nýs hátæknisjúkrahúss vera góða ráðstöfun á skattfé borið saman við 45,9% karla.“ Þá kemur fram að yngra fólk var einnig jákvæðara gagnvart því að bygging nýs hátæknisjúkrahúss væri góð ráðstöfun á skattfé en 60,9% yngsta hópsins taldi svo vera borið saman við 43,3% elsta aldurhópsins. Höfuðborgarbúar töldu frekar en fólk á landsbyggðinni að bygging nýs hátæknisjúkrahúss væri góð ráðstöfun á skattfé, eða 52,6% höfuðborgarbúa samanborið við 43,3% fólks á landsbyggðinni,“ segir einnig. MMR leit einnig til stuðnings við stjórnmálaflokka og kom í ljós að stuðningur við framkvæmdina er mestur hjá þeim sem styðja stjórnarflokkana. 58,5% stuðningsfólks Vinstri grænna og 57,2% Samfylkingarfólks taldi málið af hinu góða „borið saman við 45,2% stuðningsfólks Framsóknarflokksins og 44,4 Sjálfstæðismanna.“
Mest lesið Lúther sagður í haldi vegna kókaínsmygls Innlent Afturkalla breytinguna gegn gjaldi Innlent Árekstur við afleggjara á Norðurlandi vestra Innlent „Hefði mátt koma í veg fyrir enn frekari ótta“ Innlent Náði ekki símsambandi og hélt af stað gangandi Innlent Bráð veikindi á Fimmvörðuhálsi Innlent Nauðsynlegt að rífa stúkuna sem fyrst Innlent Með ráðum gert að gefa þjóðinni frí frá pólitíkinni í aðdraganda atkvæðagreiðslunnar Innlent „Fyllerísrugl“ endaði með handtöku og beinbroti Innlent Endalaust þvaður gæti fælt kjósendur frá Innlent Fleiri fréttir Heimilislausir Píratar leita að nýrri Tortúga Kannski rétt að hverfa frá áformum um nýjan sparkvöll við Landakot Lúther sagður í haldi vegna kókaínsmygls „Fyllerísrugl“ endaði með handtöku og beinbroti Árekstur við afleggjara á Norðurlandi vestra „Hefði mátt koma í veg fyrir enn frekari ótta“ Nýtt app til að finna týndar kisur frumsýnt í dag eftir sex ára þróunarvinnu Rapp og dýrðir í Búðardal Nauðsynlegt að rífa stúkuna sem fyrst Bráð veikindi á Fimmvörðuhálsi Ekið á gangandi vegfaranda við Vík Náði ekki símsambandi og hélt af stað gangandi Með ráðum gert að gefa þjóðinni frí frá pólitíkinni í aðdraganda atkvæðagreiðslunnar Tveir handteknir eftir hópslagsmál Umferðarslys á Suðurlandi, forsætisráðherra um ESB og Laugardalslaug Afturkalla breytinguna gegn gjaldi Líkamsárás og ölvunarakstur Endalaust þvaður gæti fælt kjósendur frá Synda milli Eyja og Íslands til minningar um Bríeti Irmu Breyttu verklagi eftir ábendingar Hvals: „Bagalegt að íslenskum sjómönnum sé stefnt í hættu“ Innbroti í apótek lauk með glæfraakstri yfir göngubrú Grunur um uppljóstrun, hætta á aðgerðaleysi og eftirför Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut Sakar MAST um að ljóstra upp um staðsetningu skipa Hvals „Sé ekki annað en að Samkeppniseftirlitið sé að sinna sínu hlutverki“ Vesturbæjarlaug opnar dyrnar á ný „Alltaf litið á þetta sem eitthvað sem bráðamóttakan gerir“ Guðlaugur segir Þorgerði á hröðum flótta Þrjú tilvik til rannsóknar: Bandero á ferðinni á hvalamiðum Þorgerður Katrín mun ekki mæta Gulla Þór Sjá meira