Fangar þurfa sjálfir að greiða fyrir stinningarlyfin 6. október 2011 11:36 Litla Hraun. „
Almennt séð, þá eiga allir íbúar landsins rétt á læknaþjónustu, hvort sem þeir eru fangar eða ekki,“ segir Óskar Reykdalsson, framkvæmdastjóri lækninga hjá Heilbrigðisstofnun Suðurlands (HSU), spurður út í stinningarlyf sem fangar á Litla Hrauni fá uppáskrifuð frá stofnuninni. Það var DV sem greindi frá því í blaði sínu í gær að fangar á Litla Hrauni fengu stinningarlyf skrifuð frá fangelsislækni, sem starfar hjá HSU. „Það er hinsvegar mikilvægt að fram komi að Viagra er aldrei niðurgreitt af ríkinu,“ segir Óskar en Viagra eru dýr lyf. Fjögurra töflu skammtur af lyfinu kostar á bilinu átta til níu þúsund krónur. Það er gjald sem fangar þurfa að greiða sjálfir fái þeir lyfið. Svo er til samheitarlyf sem er mun ódýrara. Óskar bendir á að læknar sem sinna föngum á Litla Hrauni ávísa aldrei róandi lyfjum til fanga. „Við höfum fengið góða dóma fyrir lyfjagjöf í fangelsinu. Við erum á heimsmælikvarða hvað það varðar,“ segir Óskar en læknar sem sinna föngum eiga í margvísislegu samstarfi, meðal annars við yfirlækni geðsviðs á Landspítalanum, og að sjálfsögðu fangelsismálayfirvöld. „Svo eru þarna matsatriði að sjálfsögðu, til dæmis ef kynferðisbrotamaður ætti í hlut,“ segir Óskar sem bendir á að læknir meti hvert tilvik fyrir sig og það sé vandað til verka í svona málum.
Mest lesið Keyptu ónýtt hús og fá ekki áheyrn Innlent Lögreglumaður á sjúkrahúsi eftir alvarlega árás á Goslokahátíð Innlent Gufunesmálið: Hringdu um miðja nótt og sögðu hinn látna vera kynferðisafbrotamann Innlent „Við ætlum að upplifa stóra drauminn hans Kristians Helga” Innlent „Þetta virðast vera einu gjöldin sem ekki má snerta“ Innlent Skipstjóri handtekinn í Reykjavíkurhöfn Innlent Piltur reyndi að stöðva árás föður sem ógnaði móðurinni með hníf Innlent Nýjasta útspil Ísraela á Gasa minni á „lokalausn“ nasistanna Innlent Kolfelldu tillögu minnihlutans: „Það er meirihlutinn sem stýrir dagskránni“ Innlent Menn á sextugs- og sjötugsaldri grunaðir um stórfellt fíkniefnabrot Innlent Fleiri fréttir „Íslandsmet í óvandaðri lagasetningu“ Skýrt að fleiri hafi brotið af sér í máli fötluðu konunnar Engar skýringar frá saksóknara, Íslandsmet í umræðum og óvæntur hvalur Íslandsmet slegið í málþófi Ekið á sjö ára barn í Borgartúni Gufunesmálið: Hringdu um miðja nótt og sögðu hinn látna vera kynferðisafbrotamann Skorið á bönd palestínska og úkraínska fánans Konan er komin í leitirnar Keyptu ónýtt hús og fá ekki áheyrn Alls 246 ökumenn sektaðir og átta sviptir vegna hraðaksturs Eldri borgarar skemmtu sér í múmínkastalanum Menn á sextugs- og sjötugsaldri grunaðir um stórfellt fíkniefnabrot Nýjasta útspil Ísraela á Gasa minni á „lokalausn“ nasistanna Handviss um að Sjálfstæðisflokkurinn fái yfir þrjátíu prósent Kolfelldu tillögu minnihlutans: „Það er meirihlutinn sem stýrir dagskránni“ „Þetta virðast vera einu gjöldin sem ekki má snerta“ Skráningargjöld, fylgistap og gettó á Gasa Bæjarráð Voga vill gera ráð fyrir flugvelli í Hvassahrauni Leggur til þjóðaratkvæðagreiðslu um bókun 35 Piltur reyndi að stöðva árás föður sem ógnaði móðurinni með hníf Flugvél Play lenti í hagléli og þurfti að snúa við Lögreglumaður á sjúkrahúsi eftir alvarlega árás á Goslokahátíð Óskar viðbragða ráðherra við löngum afgreiðslutíma Lögregla lýsir eftir heilabilaðri konu á Akureyri „Við ætlum að upplifa stóra drauminn hans Kristians Helga” Vilja taka fjármálaáætlun til umræðu Einu verslun Þingeyringa lokað Aðsóknarmet slegið í lögreglunám Skipstjóri handtekinn í Reykjavíkurhöfn Ákvörðun dómsmálaráðherra gríðarleg vonbrigði Sjá meira