Borgarleikhúsið myndskreytir símaskránna 6. október 2011 11:51 Magnús Geir og Sigríður við undirritun samningsins.
Já og Borgarleikhúsið hafa skrifað undir samkomulag um að Borgarleikhúsið verði samstarfsaðili Símaskrárinnar 2012, sem mun koma út í maí á næsta ári. Í samningnum felst að Borgarleikhúsið mun ásamt Já koma að vinnu við myndskreytingar Símaskrárinnar og auk þess taka þátt í vinnu við efnistök bókarinnar. „Símaskráin er stærsta einstaka bókaútgáfa hvers árs og sýna kannanir að hún berst inn á meirihluta heimila á landinu og er notuð af stærstum hluta landsmanna. Borgarleikhúsið hefur notið mikilla vinsælda undanfarin ár og sannað að Íslendingar eru svo sannarlega einstök leikhúsþjóð. Innan veggja Borgarleikhússins starfa margir af færustu sviðslistamönnum þjóðarinnar. Sýningar Borgarleikhússins hafa einnig vakið verðskuldaða athygli utan landsteinanna, ekki síst sýningarnar sem settar hafa verið upp í samstarfi við verðlaunaleikhópinn Vesturport," segir í tilkynningu. „Eitt meginmarkmið okkar í Borgarleikhúsinu er að eiga í virku samtali við samfélagið sem leikhúsið er sprottið úr. Símaskráin hefur í áranna rás oft verið spegill þjóðarinnar og því er okkur mikill heiður að vera valin sem samtarfsaðili Símaskrárinnar 2012. Það er líka ánægjulegt að ákveðið hafi verið að beina nú í fyrsta skipti athygli að sviðslistum en leikhúslíf þjóðarinnar er í miklum blóma þessi misserin," segir Magnús Geir Þórðarson, leikhússtjóri Borgarleikhússins í tilkynningu. „Símaskráin er miðill sem speglar samfélagið á hverjum tíma, hún endurspeglar ekki bara fólkið sem býr í landinu okkar, heldur líka menninguna og stemmninguna. Við viljum að Símaskráin sé lifandi bók, sem er skemmtileg, ásamt því að vera fróðleg. Við hlökkum mjög til samstarfsins með Borgarleikhúsinu og því frábæra fólki sem þar starfar," segir Sigríður Margrét Oddsdóttir, forstjóri Já í tilkynningunni.
Mest lesið Lúther sagður í haldi vegna kókaínsmygls Innlent Afturkalla breytinguna gegn gjaldi Innlent Árekstur við afleggjara á Norðurlandi vestra Innlent „Hefði mátt koma í veg fyrir enn frekari ótta“ Innlent Náði ekki símsambandi og hélt af stað gangandi Innlent Bráð veikindi á Fimmvörðuhálsi Innlent Nauðsynlegt að rífa stúkuna sem fyrst Innlent Með ráðum gert að gefa þjóðinni frí frá pólitíkinni í aðdraganda atkvæðagreiðslunnar Innlent „Fyllerísrugl“ endaði með handtöku og beinbroti Innlent Endalaust þvaður gæti fælt kjósendur frá Innlent Fleiri fréttir Heimilislausir Píratar leita að nýrri Tortúga Kannski rétt að hverfa frá áformum um nýjan sparkvöll við Landakot Lúther sagður í haldi vegna kókaínsmygls „Fyllerísrugl“ endaði með handtöku og beinbroti Árekstur við afleggjara á Norðurlandi vestra „Hefði mátt koma í veg fyrir enn frekari ótta“ Nýtt app til að finna týndar kisur frumsýnt í dag eftir sex ára þróunarvinnu Rapp og dýrðir í Búðardal Nauðsynlegt að rífa stúkuna sem fyrst Bráð veikindi á Fimmvörðuhálsi Ekið á gangandi vegfaranda við Vík Náði ekki símsambandi og hélt af stað gangandi Með ráðum gert að gefa þjóðinni frí frá pólitíkinni í aðdraganda atkvæðagreiðslunnar Tveir handteknir eftir hópslagsmál Umferðarslys á Suðurlandi, forsætisráðherra um ESB og Laugardalslaug Afturkalla breytinguna gegn gjaldi Líkamsárás og ölvunarakstur Endalaust þvaður gæti fælt kjósendur frá Synda milli Eyja og Íslands til minningar um Bríeti Irmu Breyttu verklagi eftir ábendingar Hvals: „Bagalegt að íslenskum sjómönnum sé stefnt í hættu“ Innbroti í apótek lauk með glæfraakstri yfir göngubrú Grunur um uppljóstrun, hætta á aðgerðaleysi og eftirför Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut Sakar MAST um að ljóstra upp um staðsetningu skipa Hvals „Sé ekki annað en að Samkeppniseftirlitið sé að sinna sínu hlutverki“ Vesturbæjarlaug opnar dyrnar á ný „Alltaf litið á þetta sem eitthvað sem bráðamóttakan gerir“ Guðlaugur segir Þorgerði á hröðum flótta Þrjú tilvik til rannsóknar: Bandero á ferðinni á hvalamiðum Þorgerður Katrín mun ekki mæta Gulla Þór Sjá meira