Ráðherra rúntar á vetnisbíl 24. ágúst 2011 16:56 Katrín mætti á forláta vetnis-bifreið á fund í gær.
Katrín Júlíusdóttir, iðnaðarráðherra, mætti á óvenjulegu farartæki á ríkisstjórnarfund í gær. Um er að ræða Hyundai Tuscon jeppling sem gengur fyrir vetni. Katrín sagði bílinn rúmgóðan og kraftmikinn. „Það var alveg frábært að keyra hann," sagði hún og taldi að vel væri hægt að keyra á honum um landsbyggðina, það eina sem vantaði væru áfyllingarstöðvar. Katrín hefur áður prufað að keyra rafmagnsbíl. Hún segir bílana tvo mjög ólíka, rafbíllinn væri minni og ekki jafn-kraftmikill. Hann hentaði vel í innanborgar ráp. Vetnisbíllinn hentaði betur til lengri ferða, en hann drífur 600 km á fullum tanki. Katrín hyggst prufa bíla með fleiri orkugjöfum í framtíðinni, t.d. metanbíla og lífdísel. „Þetta er nú það sem koma skal," segir hún. „20. öldin var öld olíunnar; 21. öldin verður öld lífrænna orkugjafa." Orkuskiptaáætlun verður eitt af stóru málunum í iðnaðarráðuneytinu í vetur. Í vor samþykkti Alþingi þá stefnu að árið 2020 myndu 10% af orku í samgöngum koma frá endurnýjanlegum orkulindum. Um þetta var stofnað klasasamstarf, Græna Orkan, til að koma á sambandi milli þeirra sem fást við orkuskipti í samgöngum, efla þekkingu á orkugjöfum og fleira. Iðnaðarráðherra hefur forgöngu um verkefnið. „Þess vegna er alveg sjálfsagt að ég prófi þetta allt," segir Katrín. Hyundai sem framleiðir bílinn vilja sjá hvernig hann höndlar erfiðar, skandinavískar aðstæður. Iðnaðarráðuneytið fékk hann því til prufu í nokkra daga. Hann var fluttur til landsins fyrir milligöngu Íslenskrar NýOrku, en Skandinavísku vetnisvega-samtökin eiga hann.
Mest lesið Vaktin: Maduro handtekinn eftir árás á Venesúela Erlent Rennibrautinni lokað eftir fjölda óhappa Innlent Bandaríkin sprengja í höfuðborg Venesúela Erlent Íslenskur maður lést í Úkraínu Innlent Eldur við flugvöll á Grænlandi Erlent „Miður að bensínhákum sé umbunað“ Innlent Spunaleikari vill annað sæti Samfylkingarinnar í borginni Innlent Vilhjálmur tekur oddvitaslaginn í Reykjanesbæ Innlent Sprenging eftir að gestir opnuðu út Erlent Kostnaður vegna veikinda nemur milljörðum Innlent Fleiri fréttir Sjálfstæðismenn sveiflast upp en jafnaðarmenn dala í Reykjavík Rýnt í stöðuna í Venesúela og Sjálfstæðisflokkurinn á flugi Rennibrautinni lokað eftir fjölda óhappa Dóra Björt vill þriðja eða fjórða sæti Vilhjálmur tekur oddvitaslaginn í Reykjanesbæ Spunaleikari vill annað sæti Samfylkingarinnar í borginni „Miður að bensínhákum sé umbunað“ Íslenskur maður lést í Úkraínu Nýársbarnið á Suðurlandi býr á Eyrarbakka Réttindalaus og keyrði á kyrrstæðan lögreglubíl Kostnaður vegna veikinda nemur milljörðum Verðlækkanir á bensíni og áramótaheit landsmanna 2025 var hlýjasta árið á Íslandi frá upphafi mælinga Fjögur vilja tvö efstu hjá Viðreisn Kristín vill fyrsta sætið Allt sem þú þarft að vita um nýja kílómetragjaldið Þremur þjófum vísað úr landi Funda í janúar í kjaraviðræðum flugstétta Hlutfall fínasta svifryksins áberandi hátt á nýársnótt Telur nær öruggt að fleiri hundar muni týnast Dæmi um að fólk hafi flúið upp í sveit Þurfi að sannfæra flokkinn Sex tíma leikskóladvöl nú gjaldfrjáls í Hafnarfirði Neytendur eigi meira inni eftir eldsneytislækkanir á nýju ári Hafna beiðni manns sem braut kynferðislega á stjúpdóttur Banaslys á Hvolsvelli Sumarbústaðaeigendur geti skotið upp flugeldum annars staðar Karólína Helga býður sig fram gegn sitjandi oddvita Mikill meirihluti vill lögfesta rétt barna til leikskólavistar Veki furðu að bílaleigubílar séu ekki á nagladekkjum Sjá meira