Vítisenglar sverja af sér kannabisræktendur 10. júní 2011 15:54 Vítisenglarnir sverja af sér fíkniefnapúkana. „
Við könnumst ekkert við þetta. Það hefur enginn Vítisengill eða nokkur okkur tengdur verið handtekinn,“ segir Einar Marteinsson, forseti Hells Angels á Íslandi, en lögreglan tilkynnti á vef sínum í dag að tveir karlmenn grunaðir um að tengjast Vítisenglunum hefðu verið handteknir og væru grunaðir um kannabisræktun auk vopnalagabrota. Við þetta kannast Einar ekki og segir að hann hefði eflaust fengið einhverjar fregnir af handtöku mannanna ef svo væri. Í tilkynningu lögreglunnar kemur fram að ýmis gögn, sem talin eru að tengist Hells Angels klúbbnum, fundust í húsnæðinu sem ræktunin fór fram. Þá sagði einnig að tveir aðrir karlmenn á þrítugsaldri, sem hafa tengingu við klúbbinn að sögn lögreglu, hefðu einnig verið yfirheyrðir vegna málsins. Íslensku Vítisenglunum hefur verið mikið í mun að verja mannorð klúbbsins í fjölmiðlum og Einar oft bent á að samtökin hér á landi hafi aldrei komist í kast við lögin. Lögregluyfirvöld hafa hinsvegar verulegar áhyggjur af tilveru Vítisenglanna á Íslandi en ríkilögreglustjóri hefur meðal annars tilkynnt opinberlega að klúbburinn sé angi af skipulagðri glæpastarfsemi. Og það virðist vera að Einar og félagar hafi fengið nóg. „Það eru lögsóknir í farvatninu vegna rógburðar. Við ætlum í meiðyrðamál,“ segir Einar en aðspurður segir hann málin skýrast eftir helgi og þá geti hann tjáð sig frekar um lögsóknirnar.
Mest lesið Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Innlent Bó kvaddur í hinsta sinn Innlent Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Innlent Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Innlent „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Innlent Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Innlent „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Innlent Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Innlent Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Innlent Repúblikanar vinna orrustu í kjördæmastríðinu Erlent Fleiri fréttir Fjórir í varðhaldi vegna Dettifossmálsins Rafgeymar gátu ekki fætt dælur þegar Ormurinn langi sökk Mega hjóla gegn einstefnu Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Bein útsending: Oddvitar í Reykjavík á kosningafundi Viðskiptaráðs Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Leiðir áfram unga miðflokksmenn Batahorfur betri eftir umferðarslys við Skógarveg „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Verðbólgan hjaðnar og vandræði í Landeyjahöfn Halda til Svíþjóðar í afmælisveislu Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Bó kvaddur í hinsta sinn Boða fjölgun flugferða á sama tíma og bátsferðir voru felldar niður Pílagrímaflug Air Atlanta á fullri ferð þrátt fyrir átök Urðu fyrir vonbrigðum með húsnæðispakka tvö Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Hnífstunga í heimahúsi í Árbæ Kvöddu þjóðargersemi með sögum og söng Fróaði sér úti og var gripinn með teiknað barnaníðsefni Eldgos enn líklegasta sviðsmyndin Sjá meira