Samráðshópur áfallahjálpar fundaði á Kirkjubæjarklaustri 15. júní 2011 16:37 Frá eldgosinu. Myndin er úr safni. Mynd/Vilhelm Gunnarsson
Samráðshópur áfallahjálpar fundaði í gær á Kirkjubæjarklaustri ásamt samráðshópi áfallahjálpar í Samhæfingarstöðinni í Reykjavík samkvæmt tilkynningu frá Almannavörnum. Farið var yfir stöðu mála og lagður grunnur að frekara samráði félagsþjónustu, heilbrigðisþjónustu og prestsþjónustu innan umdæmisins. Hóparnir voru sammála um mikilvægi þess að eyða óvissu meðal íbúa á sem flestum sviðum og tryggja gott upplýsingaflæði. Þjónustumiðstöð almannavarna á Kirkjubæjarklaustri var opnuð í kjölfar eldgossins í Grímsvötnum til að aðstoða heimamenn fyrir austan við uppbyggingastarfið. Meðal verkefna þjónustumiðstöðvarinnar er að skipuleggja hreinsunarstörf sjálfboðaliða í samstarfi við heimamenn og ýmis önnur aðstoð vegna eldgossins. Fjöldi sjálfboðaliða hefur lagt hönd á plóginn við hreinsunarstörf á svæðinu og er sú aðstoð ómetanleg. Í dag var 30 manna hópur sjálfboðaliða við störf á fótboltavellinum, við skólann og elliheimilið á Kirkjubæjarklaustri. Nokkuð hefur borið á að vatnsból hafi stíflast vegna ösku og hafa nokkrar nýjar holur verið boraðar þar sem þetta vandamál hefur komið upp. Haldnir hafa verið upplýsingafundir í héraði sem hafa verið vel sóttir. Í síðustu viku var haldinn fjölmennur upplýsingafundur á vegum Búnaðarsambands Suðurlands með aðkomu Bændasamtakanna, Landgræðslunnar, Matvælastofnunar og Landbúnaðarháskólans. Þar var farið yfir efnainnihald og áhrif gosösku á gróður, heyöflun, endurræktun, áburðargjöf, heymiðlun, afrétti og beitarlönd. Á þeim fundi kom fram að Bjargráðasjóður mun starfa eftir sömu reglum og eftir eldgosið í Eyjafjallajökli. Þjónustumiðstöðin er opin daglega og er viðvera frá kl.10:00 til 13:00 en utan viðverutíma eru starfsmenn á ferð um svæðið, hitta íbúa og skipuleggja aðstoð.
Mest lesið Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Innlent Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár Innlent „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Innlent Þurfti að lenda flugvél eftir að kennarinn stökk út og hrapaði til bana Erlent „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Innlent Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Innlent Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Innlent „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Innlent Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Innlent Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Innlent Fleiri fréttir Óttast að færri leiti sér aðstoðar Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Lögreglan þekkti óprúttna aðila á upptökum Krafa Íslands um undanþágur vekur spurningar í ESB Segir skoðanir Ólafs Ragnars ekkert ofboðslega fréttnæmar Opna fyrir umferð á morgun Fjárhagslegt tjón netbrota á árinu nemur hundruðum milljóna Namibíumenn krefjast skaðabóta í Samherjamálinu Hafnaði á skilti Þessi sóttu um starf bæjarstjóra Fjallabyggðar Starfshópur um gervigreind tekinn til starfa Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Öll málning þrifin af kirkjutröppunum Energy Observer komið til Reykjavíkurhafnar „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Sendi fimmtán ára skilaboð og typpamynd: „Riða i kvöld?“ Strandaði á skeri rétt utan við Húsavík Breskt herskip siglir um Hvalfjörð „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Fannar leiðir hagræðingu í Reykjanesbæ Sjávarútvegurinn og ESB, vopnagjöf og heilbrigðismál Hanna Katrín segir rasista vilja endurskilgreina hlutverk íslenska fánans Skemmdarvargarnir enn ófundnir Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Sjá meira