Vilja rannsaka tíðari komur hvítabjarna 3. maí 2011 16:05 Síðast í gær fannst hvítabjörn á Hornströndum.
Umhverfisráðherra hefur óskað eftir greinargerð frá Náttúrufræðistofnun Íslands í samvinnu við Umhverfisstofnun, Veðurstofuna og aðra hlutaðeigandi aðila um hugsanlegar orsakir aukinnar tíðni komu hvítabjarna hingað til lands. Fjórir birnir hafa gengið á land á sl. 3 árum, sá síðasti í gær og segir í tilkynningu frá umhverfisráðuneytinu að þetta sé mjög óvenjulegt þegar litið sé til síðustu áratuga. „Hafís hefur einnig verið langt frá landi á undanförnum árum, en sögulega hefur verið skýrt samband á milli heimsókna hvítabjarna og að hafís liggi við landið eða skammt undan landi," segir einnig. Því hefur verið óskað eftir því að Náttúrufræðistofnun hafi samband við vísindamenn bæði hérlendis og erlendis til að reyna að meta hvort tíðar komur hvítabjarna séu tilviljun, eða endurspegli á einhvern hátt breytingar á náttúrufari, sem kalli á aukinn viðbúnað út frá öryggis- og verndarsjónarmiðum. Í júní 2008 gengu tveir birnir á land á Skaga og í janúar 2010 tók björn land í Þistilfirði, segir ennfremur og þegar birnirnir á Skaga fundust voru 20 ár liðin frá því björn gekk síðast á land á Íslandi. „Alls munu hafa sést um 50 til 60 hvítabirnir á Íslandi á 20. öldinni, en langflestir á fyrri hluta aldarinnar, þegar hafís lá við landið eða nærri landi. Eftir 1932 voru einungis fjórir lifandi birnir felldir á landi á 20. öld: í Hornvík 1963, Grímsey 1969, Fljótavík á Hornströndum 1974 og í Fljótum í Skagafirði 1988. Nú hafa fjórir birnir gengið á land og verið felldir sl. 3 ár, eða jafn margir og á rúmlega 70 ára tímabili þar á undan." Þá segir að fyrir liggi ítarleg úttekt á viðbúnaði sem þarf til að reyna að bjarga hvítabjörnum lifandi, en hafi hins vegar verið niðurstaða að of mikil óvissa væri um árangur slíkra björgunartilrauna til að réttlæta kostnaðarsaman viðbúnað, auk þess sem engin rök sem lytu að vernd tegundarinnar eða dýravernd kölluðu á slíkar aðgerðir.
Mest lesið Magnús Eiríksson borinn til grafar Innlent „Kanntu ekki mannasiði mannfjandi?“ Innlent Hafi nauðgað sex ára stúlku og eiginkonu sinni og birt af því myndir Innlent Trump fer mikinn á Truth Social og virðist ætla sér Kanada Erlent Kvaðst hafa drepið fjölskylduna og ætlað að stinga sig í hjartað Innlent „Ekki gott að fólk sé endalaust að sulla svona í víni“ Innlent Heitt í hamsi vegna Grænlands Innlent Fyrsta árinu af fjórum lokið Erlent Rauð norðurljós vegna kórónugoss Innlent Neituðu að greiða starfsfólki á leið í eigin rekstur uppsagnarfrest Innlent Fleiri fréttir Annasamasti dagur á bráðamóttöku í lækna minnum Neituðu að greiða starfsfólki á leið í eigin rekstur uppsagnarfrest Gríðarleg fjölgun hótana og dæmi um að setið sé fyrir lögreglumönnum Kvaðst hafa drepið fjölskylduna og ætlað að stinga sig í hjartað Ofbeldi gegn lögreglumönnum magnast og baráttan hafin um Framsókn Nemi í jarðfræði hlaut Nýsköpunarverðlaunin „Kanntu ekki mannasiði mannfjandi?“ Brynjar skýtur föstum skotum á Flokk fólksins „Fyrsta ár ríkisstjórnarinnar hefur mistekist“ Magnús Eiríksson borinn til grafar Heitt í hamsi vegna Grænlands Hafi nauðgað sex ára stúlku og eiginkonu sinni og birt af því myndir Dýr framtíðarlausn að færa þjóðveginn vegna grjóthruns Borgarstjórn biður vöggustofubörnin afsökunar Eldgos á næstu vikum enn líklegasta niðurstaðan Sjö tilkynningar um heimilisofbeldi að jafnaði á dag „Ekki gott að fólk sé endalaust að sulla svona í víni“ Styrkleiki að formaður Framsóknar eigi sæti á þingi Þrjátíu á slysadeild vegna hálku og sjúkrabílar á leiðinni með fleiri Mannréttindaráðið ræðir Íran að frumkvæði Íslands Fimm starfslokasamningar kostað Hafró 35 milljónir Ögranir Trumps halda áfram og tugir leituðu á bráðamóttöku í hálkunni Á þriðja tug á bráðamóttöku vegna hálkuslysa Ingibjörg býður sig fram í formanninn Þrír fullir Íslendingar lausir úr haldi Hrókering hjá Helga og Miðflokknum vex Áss megin Sandra tekin við af Guðbrandi Flughált í höfuðborginni og víðar um land Lamdi konu stuttu eftir að hann var stunginn Sænski herinn með viðbúnað á Íslandi Sjá meira