Mistök að samþykkja umsókn í ESB SB skrifar 8. maí 2011 12:23 Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra.
Ögmundur Jónasson segist hafa gert mistök þegar hann studdi umsókn Íslendinga í Evrópusambandið. Hann vill flýta samningaviðræðunum og leggja málið í dóm kjósenda. Ögmundur segir að Evrópusambandið sé að draga aðildarviðræðurnar á langinn meðan reynt sé að egna þjóðina með peningastyrkjum og fagurgala. Hannsegist standa við þann málefnasamning sem gerður var við Samfylkinguna en Ögmundur studdi umsóknina inn í ESB í atkvæðagreiðslu árið 2009. „Það breytir því þó ekki að þetta ferli hefur orðið á annan veg en ég taldi. Í stað samningaviðræðna erum við ansi nálægt því að vera komin inn í aðlögunarferli og viðræðurnar snúast að verulegu leiti um þetta. Að þessum sökum hef e´g talað fyrir því að við reynum að komast upp úr þessu fari og reynum að stytta þetta umræðuferli um þau stóru mál sem þarf að kjósa um,“ segir Ögmundur. Nú er ljóst að fyrstu kaflarnir sem samið verður um eru tiltölulega léttvægir. Ætti að byrja á erfiðu köflunum og drífa málið í atkvæðagreiðslu? „Ég hef alltaf verið fylgjandi því. Eru nokkur atriði sem menn horfa til. Sjávarútvegurinn og landbúnaður. Þó í mínum huga snúist þetta um lýðræðið. Ég er andvígur inngöngu í ESB hvað sem kemur út úr þessum viðræðum en við eigum að fá það á borðið hvað kemur út úr þeim viðræðum og ganga til atkvæðagreiðslu um það,“ segir Ögmundur. Ögmundur var gestur Sigurjóns M. Egilssonar í Sprengisandi í morgun en þátturinn er í heild hér í útvarpshlutanum á Vísi.
Mest lesið Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ Innlent Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Innlent Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Innlent „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Innlent „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Innlent Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Innlent Fleiri fréttir Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Mátti ekki arfleiða sambýliskonuna að séreigninni Dómsmálaráðherra boðar herta löggjöf í vændismálum Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Svör Kristrúnar minni meira á Keir Starmer en Mette Fredriksen Flugvallarstæði Hvassahrauns á mesta áhættusvæði hraunflæðis Svæðisskrifstofur Guðmundar Inga líklega slegnar út af borðinu Helmingur gæti ekki mætt 100 þúsund króna útgjöldum Bein útsending: Svarar fyrir skipulagsbreytingar á framhaldsskólum Bein útsending: Ræða markmiðadrifði hagkerfi í þaula Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja Sjá meira