Lífið

Lítil íslensk mynd sló við Scorsese og Cameron Crowe

Leyfði listagyðjunni að njóta sín Sigríður Níelsdóttir fór á gamals aldri að semja tónlist og búa til listaverk og vakti mikla athygli fyrir það. Heimildarmynd um hana vann sigur á Copenhagen Dox á dögunum en Sigríður náði sjálf aldrei að sjá myndina.Fréttablaðið/Hrönn
Leyfði listagyðjunni að njóta sín Sigríður Níelsdóttir fór á gamals aldri að semja tónlist og búa til listaverk og vakti mikla athygli fyrir það. Heimildarmynd um hana vann sigur á Copenhagen Dox á dögunum en Sigríður náði sjálf aldrei að sjá myndina.Fréttablaðið/Hrönn
Heimildarmyndin Amma Lo-Fi kom sá og sigraði á heimildarmyndahátíðinni Copenhagen Dox sem fram fór á dögunum.

Myndin var valin sú besta í flokki tónlistarmynda og lagði þar kvikmyndir eftir leikstjóra á borð við Martin Scorsese og Cameron Crowe. Scorsese var með heimildarmynd um bítilinn George Harrison á meðan Crowe gerði tuttugu ára ferli bandarísku rokkrisanna í Pearl Jam skil. Svo skemmtilega vill til að myndin bar einnig sigurorð af tónleikamynd Sigur Rósar, Inni, en Ingibjörg Birgisdóttir, einn af þremur leikstjórum Ömmu Lo-Fi, er systir Jóns Þórs Birgissonar, söngvara Sigur Rósar.

„Það fer örugglega að styttast í að Jónsi verði kallaður litli bróðir hennar Ingu," segir Orri Jónsson, einn af leikstjórum myndarinnar.

Amma Lo-Fi sjálf segir frá Sigríði Níelsdóttur sem ákvað þegar hún var komin yfir sjötugt að leyfa listagyðjunni að njóta sín. Hún fór að semja og gefa út tónlist, búa til klippimyndir og vakti töluverða athygli fyrir. Sérstaka athygli vakti að Sigríður prófaði sig áfram með tilraunakennda dægurtónlist, enda ekki á hverjum degi sem eldri borgarar leggja lag sitt við nýtískulegar tónlistarstefnur.

Orri heyrði fyrst af verkum Sigríðar í gegnum Tólf tóna. „Mér fannst þetta strax vera eitthvað sem einhver varð að dókumentera," segir Orri en heimildarmyndin var alls átta ár í vinnslu. „Þetta vannst bara hægt og rólega eftir því sem efni og tími gaf tækifæri til." Sigríður sjálf náði hins vegar aldrei að sjá myndina í fullri lengd því hún andaðist í vor. „Dætur hennar hafa séð myndina og svo komu ættingjar hennar í Danmörku á sýningu myndarinnar í Kaupmannahöfn sem kom okkur skemmtilega á óvart."

Orri og Ingibjörg voru á síðasta snúningi með að klára eftirvinnslu myndarinnar og luku við klippingu hennar aðeins nokkrum sólarhringum áður en hún var sýnd í Kaupmannahöfn. „Við fengum sýningareintakið sex klukkustundum áður en við flugum út, þetta var allt saman mjög íslenskt," segir Orri.freyrgigja@frettabladid.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.