SA: Vilja semja til þriggja ára 29. apríl 2011 11:05 Vilmundur Jósefsson, formaður SA. MYND/GVA
Framkvæmdastjórn Samtaka atvinnulífsins ætlar að leita eftir því við samningsaðila að ljúka gerð kjarasamnings. Þetta kom fram á blaðamannafundi sem samtökin héldu nú rétt fyrir ellefu. Á fundinum lýstu forystumenn vilja sínum til að gera kjarasamninga til þriggja ára. Þetta eru viðbrögð samtakanna við yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar frá því í gærkvöldi, sem lögð var fram til að liðka fyrir að viðræður um kjarasamninga kæmust aftur á skrið eftir að slitnaði upp úr þeim fyrir helgina. Í yfirlýsingu frá SA segir: "Í gærkvöldi bárust ný drög að yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar í tengslum við kjarasamningana. Að mati SA er þar komið að nokkru til móts við sjónarmið samtakanna um auknar framkvæmdir í hagkerfinu auk þess sem sett er fram ákveðin bókun um meðferð frumvarps um sjávarútvegsmál. Samtök atvinnulífsins telja mikilvægt að skapa fyrirtækjum landsins starfsöryggi og frið og hafa því ákveðið að láta reyna á vilja ASÍ og landssambandanna til að ljúka gerð þriggja ára kjarasamnings með aðfarasamningi til 15. júní nk. Þrátt fyrir slæma reynslu SA af yfirlýsingu ríkisstjórnar við gerð stöðugleikasáttmálans 2009 þá hefur framkvæmdastjórn SA á fundi sínum í morgun ákveðið að leita eftir því við samningsaðila að ljúka gerð kjarasamningsins. SA leggja mikla áherslu á að fylgja eftir yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar og munu vinna að þvi af fullum heilindum. Þetta er gert í þeirri fullvissu að atvinnuleiðin sé best til þess fallin að ná þjóðinni út úr kreppunni og skapa grundvöll að nýrri sókn í atvinnumálum, auknum kaupmætti og því að unnt verði að draga úr atvinnuleysinu."
Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Fæddi barn utan við verslun Elko Innlent Jarðsyngur sinn besta vin Innlent Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Innlent Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Innlent Fleiri fréttir Sagði fósturmissinn með vilja gerðan og hótaði að taka frá henni börnin Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Verkin segi allt aðra sögu en Kristrún Sjá meira