Ævintýrið heldur áfram hjá loðdýrabændum 11. apríl 2011 12:14 Mynd úr safni
Verð fyrir íslensk minkaskinn hækkaði um fimm til sjö prósent á uppboði í Kaupmannahöfn í morgun og hefur aldrei í sögunni verið jafn hátt. Verðið hefur tífaldast frá því það var lægst fyrir tuttugu árum. Formaður Sambands íslenskra loðdýrabænda, Björn Halldórsson í Vopnafirði, sagði í fréttum Stöðvar 2 í síðasta mánuði að hann þekkti ekki neina atvinnugrein í landinu með betri afkomu um þessar mundir. Og ævintýrið heldur bara áfram hjá íslensku loðdýrabændunum. Á uppboðinu sem hófst í Kaupmannahöfn í morgun er verið að selja 30 til 40 þúsund minkaskinn frá Íslandi og stefnir í að um og yfir átta þúsund íslenskar krónur fáist að meðaltali fyrir hvert skinn, eða 370-400 danskar krónur. Björn áætlar að hækkunin frá síðasta uppboði í febrúar verði á bilinu fimm til sjö prósent. Hann segir þetta metverð og það sé nú orðið um sjötíu prósentum hærra, í dönskum krónum talið, en það hefur verið að meðaltali undanfarin níu ár, sem er um 230 danskar krónur. Þegar við bætist gengislækkun íslensku krónunnar er hækkunin enn meiri. Þannig hefur verð fyrir íslensk minkaskinn ríflega fjórfaldast í dönskum krónum frá því það var lægst fyrir tuttugu árum, en þá fengust um 88 danskar krónur fyrir skinnið. Sé hins vegar miðað við íslenskar krónur hefur verðið tífaldast. Danska krónan hefur á þessum tíma hækkað gagnvart íslensku krónunni úr 9 krónum upp í tæpar 22 krónur. Björn segir kannski ánægjulegustu tíðindin að menn sjái engin merki þess að verðið muni lækka á næstunni. Eftirspurn sé fremur að aukast, og nýir markaðir að koma sterkir inn, á sama tíma og ekki sé búist við framleiðsluaukningu.
Mest lesið Lést í slysi á Hálsasveitarvegi Innlent „Þetta er kannski dýrasta tækið sem barnið á“ Innlent Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að hágráta“ Innlent Handtökur í vændisrannsókn lögreglu Innlent Áhöfnin hlúði að Hólmsteini á siglingunni til Hvalfjarðar Innlent Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Erlent „Virðist vera einhverskonar gamaldags sjómennskuhefndaraðgerð“ Innlent Lögreglustjóri braut meðalhófsreglu Innlent „Það verða engir konungar“ Erlent Segir Reykjavík að verða að Mekka vændisiðnaðar Innlent Fleiri fréttir Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta „Ég hef verið kölluð þingmaður dauðans“ Segir Reykjavík að verða að Mekka vændisiðnaðar Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að hágráta“ Höfuðvígi vændismansals, mótmælandi sem brotnaði niður og Þingvellir Björgunarsveitir sóttu göngumann við Háafoss Þingið komið í sumarfrí Samþykkja úrræði fyrir fólk sem sæta þarf öryggisráðstöfunum Óljós um tilganginn en þekktu hvert egg Allt eftirlit matvæla undir einni stofnun Boltinn sé hjá fjarskiptafélögunum Fresta opnun Sundhallar Reykjavíkur Áhöfnin hlúði að Hólmsteini á siglingunni til Hvalfjarðar Vetur í íslenskri kvikmyndagerð Handtökur í vændisrannsókn lögreglu Hjartaljósin ekki sloppin „Virðist vera einhverskonar gamaldags sjómennskuhefndaraðgerð“ Stór mál á dagskrá síðasta þingfundar fyrir þingfrestun Lést í slysi á Hálsasveitarvegi Hvalavinurinn í tunnunni og Kaleo undirbýr Þingvallakonsert Inga ræddi við fulltrúa Tiktok um að hækka aldursmörk Halda í opinbera heimsókn til Færeyja Dómur burðardýrs mildaður Starmer ætlar ekki að láta í minni pokann fyrir Burnham strax Einn vildi sýkna þegar dómur fyrir sérlega sársaukafulla nauðgun var staðfestur Ólafur Þ. Harðarson sakaður um fánaslugs „Þetta er kannski dýrasta tækið sem barnið á“ Tveir á slysadeild eftir eld í Jörfabakka Stefna á að ljúka þingi í dag Loka Reykjanesbraut við Kaplakrika í kvöld Sjá meira