Beauties of Ice setja stefnuna á Skagann 24. mars 2011 12:15
Glamúrgellurnar Hildur Líf og Linda Ýr sem hristu aldeilis upp í þjóðinni með VIP partýinu fræga sem þær héldu á Replay Grensásvegi á dögunum sem að þeirra sögn var í rauninni í gríni gert og til skemmtunar eru á leiðinni upp á Skaga næstu helgi. „Við bjuggumst ekki við þessari svakalegu umræðu," segja þær spurðar út í VIP-fárið en staðfesta að þær hafa nú þegar fengið fjölda tilboða í kjölfar umræðunnar. Þegar talið berst að ferðinni sem þær standa fyrir næstu helgi þar sem þær koma meðal annars við á fegurðarsamkeppninni Ungfrú Vesturland sem fram fer á Akranesi svara þær: „Við höfðum fyrir löngu ákveðið að fara en þetta er rúmlega 40 manna hópur. Hugmyndin kom úr VIP-klúbbnum okkar sem við nefnum stundum „Beauties of Ice" sem Geiri (Ásgeir Þór Davíðsson) stakk uppá í gríni vegna þess að meirihlutinn eru stelpur sem áður hafa tekið þátt í fegurðarsamkeppnum en svo hafa bæst við myndarmenn." „Margir hafa haft samband við okkur og Geira um að fá að komast með í ferðina en því miður getum við ekki sinnt því lengur og uppselt er á fegurðarsamkeppnina sem fram fer á Akranesi. Það er víst komið heljarinnar slúður útí bæ að við séum með partý eftir keppnina en við erum nú aðeins að þessu til þess að veita þessum fallegu stúlkum stuðning þar sem við þekkjum nú nokkrar þarna og vitum hvað þær eru að ganga í gegnum og þess vegna var einhliða ákvörðun innann klúbbsins um að mæta. Þannig að við drifum bara í því að plana ferð fyrir allan mannskapinn. Það var minna en mál," segja Linda og Hildur.Er það s.s. slúður að þið ætlið að halda partý upp á Akranesi eftir fegurðarsamkeppnina? „Það var allavegana ekki planið en framhaldið er óráðið. Okkur finnst þetta alveg æðislegt og algjör tilbreyting frá daglegu lífi. Við höfum nú alltaf haft smá gaman af því að ganga skrefinu lengra. Okkur finnst alveg æðislegt hvað fólk er að taka vel í það sem við erum að gera og það er sko meira en nóg framundan. Allskonar hugmyndir og tilboð sem við erum að skoða bæði innannlands og utan," svara þær og bæta við áður en kvatt er: „Svo gæti vel verið að við kíkjum á SS-sól í smá tíma. Mikil til hlökkun er til kvöldsins og fróðlegt að sjá úrslitin hjá stúlkunum."
Mest lesið Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Lífið Bríet sviptir hulunni af kærastanum Lífið Von á tíu nýjum lögum tíu árum eftir andlátið Tónlist Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Lífið Brjálaðar boltamömmur berjast Bíó og sjónvarp Stytta af Charlie Kirk á Times Square Lífið „Undirstaða Hörpu mun hristast undir hreinum og ómenguðum krafti“ Tónlist „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Lífið Fyrsta lesbían til að prýða Playboy Lífið Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Lífið Fleiri fréttir Stytta af Charlie Kirk á Times Square Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Bríet sviptir hulunni af kærastanum Fyrsta lesbían til að prýða Playboy „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Sjá meira