Lífið

Gúglaðu betur - fyrir þá sem gefast upp á Gettu betur

Þeir sem eru að springa með rétt svör við öllum spurningum þegar Gettu betur er í sjónvarpinu geta fengið útrás fyrir visku sinni á Facebook. Náman stendur öll laugardagskvöld fyrir leik sem heitir Gúglaðu betur og eru 10 þúsund krónur í verðlaun.

Steinþór Helgi Arnsteinsson er spyrill og spurningahöfundur Gúglaðu betur. Hann ber upp vísbendingaspurningu klukkan 20.10 og sá sem svarar fyrstur vinnur. Alls verða þrjá vísbendingar lesnar upp og allir sem giska fara einnig í verðlaunapott. Steinþór er ekki ókunnugur spurningabransanum því hann sigraði Gettu betur með Borgarholtsskóla á sínum tíma og hefur keppt í Meistaranum og víðar.

Hér fyrir ofan er myndband þar sem Steinþór kynnir keppnina. Hægt er að fylgjast betur með á Facebook-síðu hennar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.