Rannsakað hvort yfirmaður hafi hvatt til ólöglegs innaksturs Jón Hákon Halldórsson skrifar 24. október 2011 10:30
Lögreglan rannsakar nú hvort vinnureglur og jafnvel fyrirmæli yfirmanna fyrirtækis, sem staðsett er á Dalvegi, hafi gert ráð fyrir innakstri á stað þar sem innakstur er bannaður. Þetta er verið að rannsaka vegna þess að hjólreiðamaður slasaðist mjög alvarlega þegar hann varð fyrir og lenti undir gámabíl sem beygt var í veg fyrir hjólreiðamanninn á þessum stað í síðustu viku. Á fésbókarsíðu lögreglunnar segir að bæði ökumaður bifreiðar og reiðhjóls hafi verið á leið vestur Dalveg. Á fyrirhugaðri akstursleið ökumanns er innakstursbann. Rannsókn lögreglu beinist meðal annars að meintu broti ökumanns bifreiðarinnar á umferðarlögum með því að aka í veg fyrir umferð gangandi og hjólandi með því að aka gegn innakstursbanni og broti á hegningarlögum með því að valda öðrum tjóni á líkama eða heilbrigði með gáleysi. Þá segir lögreglan að rannsóknin lúti jafnframt að aðstæðum á vettvangi. Meðal annars hvernig staðið var að ákvörðun um bann við innakstri á þessum stað og hvort innakstur hafi verið auðveldaður ökumönnum á leið vestur Dalveg með breytingum á umferðamannvirkjum. Rannsakað verður jafnframt hvort vinnureglur og jafnvel fyrirmæli yfirmanna fyrirtækis sem þarna er með aðstöðu, hafi gert ráð fyrir innakstri á nefndum stað. Í öllum tilvikum verður kannað hvort um refsiábyrgð geti verið að ræða.
Mest lesið Notuðu gröfu til að brjótast inn í hraðbanka Innlent Vöknuðu með rottu upp í rúmi Innlent „Það er hetja á Múlaborg“ Innlent Töldu mann ætla að nota riffil með hljóðdeyfi í Gufunesmálinu Innlent Hringir daglega í brotaþola og lykilvitni Innlent „Ketamín-drottningin“ játar að hafa selt Perry ketamín Erlent Strætó hættir að bíða svo fólk þurfi ekki að bíða Innlent Flösku með bensíni kastað í hús í Hafnarfirði Innlent Lík hafi legið í námunda við aðra um klukkustundaskeið Innlent Góður fundur en fátt fast í hendi Erlent Fleiri fréttir Vöknuðu með rottu upp í rúmi Töldu mann ætla að nota riffil með hljóðdeyfi í Gufunesmálinu Notuðu gröfu til að brjótast inn í hraðbanka Flösku með bensíni kastað í hús í Hafnarfirði Strætó hættir að bíða svo fólk þurfi ekki að bíða Lík hafi legið í námunda við aðra um klukkustundaskeið „Réttu spilin og réttu vopnin“ „Það er hetja á Múlaborg“ Hringir daglega í brotaþola og lykilvitni Faðir á Múlaborg í áfalli, leiðtogafundur í Washington og símtöl sakbornings Stjórnvöld þurfi að bregðast við veðmálavandanum Jarðskjálfti fjórum kílómetrum frá höfuðborgarsvæðinu Lögregla leitar manns vegna rannsóknar Vesturbæjarlaug aftur lokað vegna viðgerðar Auglýsingaskilti lýsti upp allan Garðabæ Göngu- og hjólabrú við Dugguvog opnuð síðdegis í dag Tollum Evrópusambandsins frestað um óákveðinn tíma Aukin gæsla og breytt snið á Menningarnótt Eldur á Kleppsvegi Starfsmaðurinn undir sérstöku eftirliti í fyrra Grétar Br. Kristjánsson lögmaður látinn Ögurstund í Washington, spilavandi ungra karla og aukin gæsla á Menningarnótt Fólk verði oft samdauna sérkennilegum aðstæðum í vinnunni „Þetta er stórt mál og tekur auðvitað tíma“ Í gæsluvarðhaldi fram í september Fullir í flugi Einn handtekinn vegna líkamsárásar og annar vegna innbrots RÚV grafi undan tilvist sinni með nýrri auglýsingu Hundrað þúsund ferðamenn heimsóttu Jökulsárlón í júlí Ekkert bann við opnum kvíum en „skussinn borgi brúsann“ Sjá meira