Innlent

Sóttvarnarlæknir rannsakar áhrif eldgossins á heilsu

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Haraldur Briem sóttvarnarlæknir segir þörf á að rannsaka áhrif öskunnar á heilsu. Mynd/ Hari.
Haraldur Briem sóttvarnarlæknir segir þörf á að rannsaka áhrif öskunnar á heilsu. Mynd/ Hari.
Sóttvarnarlæknir mun hefja rannsókn á heilsufarslegum afleiðingum ösku og annarra efna frá eldgosinu í Eyjafjallajökli næsta mánudag.

Rannsóknin er unnin í samvinnu við sóttvarnalækna og heilbrigðisstarfsmenn á Suðurlandi, lækna og hjúkrunarfræðinga lungnadeildar Landspítala og fleiri aðila. Rannsóknin mun fyrst og fremst ná til þeirra sem orðið hafa fyrir hvað mestu öskufalli í námunda við eldstöðina undanfarnar vikur. „Við erum að kanna hvaða áhrif hún kunni að hafa haft - ef einhver," segir Haraldur Briem sóttvarnarlæknir.

Hann segir að ekki séu mikil gögn til um að aska hafi mikil áhrif „En það þýðir ekki að sitja hér bara fyrir sunnan og halda því fram. Maður verður að skoða þetta," segir Haraldur. Hann segir að markmiðið sé að meta hugsanleg bráð heilsufarsleg áhrif gjóskunnar, gildi sóttvarnaráðstafana sem beitt hefur verið og hvort grípa þurfi til frekari ráðstafana. Einnig er áætlað að meta langtíma áhrif öskufalls á heilsufar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×