Innlent

Þjóðfundarfulltrúar fá 17 þúsund krónur í laun - 5 þúsund fá boðsbréf

Þjóðfundurinn sem var haldinn í Laugardalshöllinni. Myndin er úr safni.
Þjóðfundurinn sem var haldinn í Laugardalshöllinni. Myndin er úr safni.

Fimm þúsund Íslendingar fá á næstu dögum boðsbréf á Þjóðfund um stjórnarskrá Íslands sem haldinn verður í byrjun nóvember í Laugardalshöll.

Gert er ráð fyrir að 1000 manns taki þátt í Þjóðfundinum. Til að tryggja að sem flest sæti verði skipuð á fundinum voru 4000 til viðbótar kallaðir til og skráðir sem varamenn.

Þáttakendur voru valdir af handahófi úr þjóðskrá með svokölluðu slembiúrtaki.

Á Þjóðfundinum verður kallað eftir meginsjónarmiðum þátttakenda um stjórnskipan landsins, stjórnarskrá og endurskoðun á henni. Sérstök nefnd, stjórnlaganefnd, mun vinna úr upplýsingum sem safnast á Þjóðfundi 2010 og afhenda stjórnlagaþingi er kemur saman í febrúar 2011. Kosið verður til stjórnlagaþings 27. nóvember næstkomandi.

Allir þjóðfundarfulltrúar fá greidda þóknun, 17.500 krónur fyrir að taka þátt í fundinum og tekur hún mið af launum þingmanna á stjórnlagaþingi. Þá fá þátttakendur utan höfuðborgarsvæðis greiddan kostnað vegna ferða og fría hótelgistingu. Þetta er gert til að tryggja að sem flestir sjái sér fært að mæta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×