Líklegt að vistmenn í Reykjahlíð hafi sætt kynferðisofbeldi Jón Hákon Halldórsson skrifar 15. september 2010 11:04 Róbert Spanó er formaður vistheimilanefndarinnar.
Líklegt er að sumir vistmenn sem vistaðir voru á vistheimilinu Reykjahlíð á árunum 1961-1972 hafi sætt kynferðislegu ofbeldi af hálfu gestkomandi einstaklings. Þetta kemur fram í skýrslu vistheimilanefndarinnar sem birt var almenningi í morgun. Sá tími sem rannsókn vistheimilanefndar tók til og sneri að vistheimilinu í Reykjahlíð var skipt upp í tvö tímabil, áranna 1956 - 1961 annars vegar og tímabilsins 1961 - 1972 hins vegar, en á árinu 1961 var skipt um forstöðukonu á heimilinu. Það er niðurstaða vistheimilanefndar að þegar á heildina sé litið séu ekki líkur á því að vistmenn í Reykjahlíð á tímabilinu 1956 - 1961 hafi sætt illri meðferð eða ofbeldi af hálfu starfsmanna eða annarra vistmanna. Niðurstaða vistheimilanefndar er hins vegar sú að telja verði meiri líkur en minni á því að sumir vistmenn í Reykjahlíð hafi sætt kynferðislegu ofbeldi af hálfu gestkomandi eintaklings á árunum 1961-1972. Hins vegar verði hvorki talið að vistmenn í Reykjahlíð hafi beitt aðra vistmenn illri meðferð eða ofbeldi, né heldur kynferðislegu ofbeldi eða kynferðislegri áreitni. Þá er ekki talið að forstöðukonan sem starfaði á árunum 1961-1972 né heldur starfsmenn sem störfuðu á þessum tíma haif beitt vistmenn illri meðferð eða ofbeldi.Aðstæður á Silungapolli ófullnægjandi Silungapollur var rekinn á árunum 1950-1969 við Suðurlandsveg í nágrenni Reykjavíkur. Heimilið var ætlað fyrir börn á aldrinum 3-7 ára sem komu af heimilum þar sem uppeldisaðstæður voru slæmar s.s. vegna veikinda foreldra, vanrækslu, ofbeldis eða áfengisneyslu. Samhliða starfrækti Rauði kross Íslands sumardvöl fyrir börn á Silungapolli en þeirri starfemi var hætt árið 1965 Það er niðurstaða vistheimilanefndar að ekki séu forsendur til að álykta að meiri líkur en minni séu á því að þeir vistmenn Silungapolls sem komu fyrir nefndina hafi sætt illri meðferð eða ofbeldi á Silungapolli. Á hinn bóginn tekur vistheimilanefnd fram í skýrslu sinni að verulega gagnrýnivert sé að ákveðið hafi verið að nýta Silungapoll í þágu barnaverndarstarfs með því að vista þar annars vegar börn um langa hríð sem bjuggu við bágar heimiilisaðstæður og hins vegar börn sem dvöldu aðeins sumarlangt á vegum félagasamtaka. Þá telur visheimilanefnd ljóst að aðstæður og húsakostur á Silungapolli hafi lengst af starfstímabilinu verið ófullnægjandi miðað við þá starfsemi sem þar var stunduð, allt of mörg börn hafi veirð vistuð sum árin, bæðið miðað við húsakost og starfsmannafjölda. Ótvírætt sé að þessar aðstæður hafi verið fallnar til þess að gera dvöl barnanna miklum mun erfiðari en ella.
Mest lesið Öðru embætti falið að rannsaka andlátið Innlent Sláandi niðurstöður um afstöðu Dana til sambandsins við Bandaríkin Erlent „Svona rosaleg vanlíðan getur ekki staðið endalaust“ Innlent Segir vonbrigðin með prinsessuna rista djúpt Erlent Rétt var að svipta Guðmund Karl lækningaleyfinu Innlent Þrettán ára synti fjóra kílómetra til að bjarga fjölskyldu sinni Erlent Fórnarlömb vilja láta loka á Epstein-skjölin Erlent Fara fram á gæsluvarðhald yfir starfsmönnum Hraunbúða Innlent Tveir handteknir í tengslum við andlát í Vestmannaeyjum Innlent Árekstur í Urriðaholti Innlent Fleiri fréttir Unglingaofbeldi eykst: „Slagsmál geta hreinlega endað með manndrápi“ Grafið í háspennustreng í Urriðaholti Skæð fuglaflensa í villtum fuglum á höfuðborgarsvæðinu Fara fram á gæsluvarðhald yfir starfsmönnum Hraunbúða Andlát í Eyjum til rannsóknar og listería á Vitatorgi Ekki staðfest að veikindi fimm tengist listeríu í salati Árekstur í Urriðaholti Miðflokkurinn býður fram í Vestmannaeyjum Kona kastaði flösku í höfuð manns Öðru embætti falið að rannsaka andlátið Rétt var að svipta Guðmund Karl lækningaleyfinu Átta frambjóðendur VG berjast um þrjú sæti á lista í Reykjavík Litlar breytingar á fylgi flokkanna Nakinn á rölti og hrækt í hár ökumanns „Svona rosaleg vanlíðan getur ekki staðið endalaust“ Þriðjungi finnst erfitt að fylgjast með fréttum Segir loðnuna allsstaðar kveikja vertíðarstemningu „Þá kemur bara allt í einu högg“ Tveir handteknir í tengslum við andlát í Vestmannaeyjum Gagnrýnir stjórnvöld um sinnuleysi vegna fæðuöryggis þjóðarinnar Brottvísanir verði beittasta vopnið Fjölskyldunni vísað til Rússlands en örlög föðurins óljós Fækka sýslumönnum í einn Óttaðist um líf sitt þegar árásin stóð sem hæst Loka framleiðslueldhúsi vegna listeríu Eygló landpóstur greiðir 45 þúsund krónum meira: „Er ekki venjulegt fólk á landsbyggðinni?“ Einum Bifrastarkennaranna sagt upp fyrir ótengdar sakir Vilja ekki óundirbúnar fyrirspurnir í borgarstjórn Kári Stefánsson fordæmir vinnubrögð Moggans Vilja kengbeygja kvenfélagið og krefjast Ketiláss alls Sjá meira