Innlent

Líkamsárás í Vestmannaeyjum

Ráðist var á karlmann á veitingahúsi í Vestmannaeyjabæ í nótt, sem lyktaði með því að hann hlaut áverka í andliti og jafnvel skaða á auga. Lögregla var kvödd til og handtók hún árásarmanninn, sem gistir fangageymslur. Gert var að sárum þolandans á sjúrkahúsinu í Eyjum, en i dag verður kannað nánar hvort hann hefur hlotið augnskaða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×