Innlent

Ekið á 11 ára stúlku í Hvaleyrarholti

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Lögreglan segir að stúlkan hafi fengið heilahristing. Mynd/ Pjetur.
Lögreglan segir að stúlkan hafi fengið heilahristing. Mynd/ Pjetur.
Ekið var á 11 ára stúlku á Hvaleyrarholti í Hafnarfirði síðdegis í gær. Hún var flutt á slysadeild til skoðunar. Stúlkan reyndist óbrotin en mun hafa fengið heilahristing, samkvæmt upplýsingum á vef lögreglunnar.

Þá beit hundur pilt í Mosfellsbæ í gærmorgun. Hann var á leið í skólann þegar þetta gerðist en pilturinn var bitinn í fótinn. Meiðsli hans voru ekki talin alvarleg. Lögreglan segir að ekki sé ljóst hvað verði um hundinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×