Innlent

Bálhvasst en lítið tjón

Bálhvasst var víða um land í gærkvöldi og fram á nótt, en fréttastofunni er ekki kunnugt um óhöpp eða teljandi tjón af völdum óveðursins.

Þó féll gangbrautarviti um koll á Akureyri og ljósastaur bognaði, auk þess sem ljósakúpull féll úr öðrum staur.

Nokkur trambólín tóku flugið á Selfossi og hafði eitt lent á bíl, áður en lögregla skarst í leikinn og hamdi þau.

Nokkur fiskkör brugðu á leik á hafnarsvæðinu í Vestmannaeyjum í nótt, en ekkert tjón hlaust af. Þar var mjög hvasst.

Ekki er vitað um neitt foktjón á höfuðborgarsvæðinu, og á Suðurnesjum fékk lögregla engar tilkynningar um fok. Áfram er spáð stormi suðaustanlands farm eftir morgni með rigningu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×