Innlent

Sorpa gefur 7,5 milljónir til söfnunar Reykjadals

Björn H. Halldórsson, framkvæmdastjóri Sorpu, færði forsvarsmönnum Reykjadals, 7,5 milljónir á lokahátíð sumarbúðanna sem fór fram í dag.

„Mikill fögnuður braust út meðal hátíðargesta en með þessari sjö og hálfu milljón styttist leiðin heldur betur að markmiðinu," segir í tilkynningu frá Styrktarfélagi lamaðra og fatlaðra sem hefur rekið sumarbúðir fyrir börn á aldrinum 5-23 ára í Reykjadal í tæp 50 ár en einnig boðið upp á helgardvalir yfir vetrartímann. Vegna samdráttar blasti við að hætta þyrfti starfinu í Reykjadal en um 15 milljónir þarf til að tryggja starfsemina áfram. Með framlagi Sorpu hafa nú safnast yfir 13 milljónir.

Nýverið hófu starfsmenn og velunnarar Reykjadals fjársöfnun þar sem áheitum er safnað. Næstkomandi þriðjudag munu starfsmenn ganga með einhvern sitjandi í hjólastól frá Laugalandi í Holtum, sem eru einnig sumarbúðir fyrir fatlaða, til Reykjadals og þaðan að húsnæði Styrktarfélagsins að Háaleitisbraut í Reykjavík. Vegalengdin er um 130 kílómetrar.




Tengdar fréttir

Á sjöttu milljón safnað fyrir börnin í Reykjadal

„Söfnunin gengur stórvel og nú hafa um 5,6 milljónir safnast. Við eigum von á stórum gjöfum á morgun og á þriðjudaginn þegar gangan hefst,“ segir Sólveig Hlín Sigurðardóttir forstöðumaður Reykjadals.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×