Minna fjárlagagat en reiknað var með 4. júní 2010 07:00 Steingrímur J. Sigfússon
Útlit er fyrir að fjárþörf ríkisins á næsta ári verði tæpum tíu milljörðum minni en spáð hafði verið. Fjárlagagatið nemi rúmum 40 milljörðum króna, í stað tæpum 50 milljörðum. Í ráðuneytunum er unnið að tillögum til hagræðingar og þurfa þau að skila tillögum til fjármálaráðuneytisins 11. júní. Ekki verður um flata niðurskurðarkröfu að ræða, en samkvæmt heimildum Fréttablaðsins nemur niðurskurður um fimm til tíu prósentum. Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra segir vinnu við fjárlögin ganga vel. Seinkun þjóðhagsspár hafi þó sett strik í reikninginn og því hafi þurft að reikna sumar hagtölur innan ráðuneytanna. Í grófum dráttum sé fjárhagsbúskapurinn á áætlun; tekjuhliðin sé aðeins undir en hvað gjöld varðar standi ríkissjóður vel. Sparnaðaráætlanir þær sem gripið var til í fyrra hafi gengið vel upp. Steingrímur vill ekki tiltaka tölur í þessum efnum. Fréttablaðið hefur þó heimildir fyrir því að gatið sem stoppa þarf í fyrir árið í fyrra verði tæpum tíu milljörðum minna en hugað var; muni nema rúmlega 40 milljörðum í stað tæplega 50 milljarða. Samkvæmt sömu heimildum verður þunginn á útgjaldahliðinni, eða um þrír fjórðu hlutar. Það þýðir hagræðingu um 30 milljarða, eða um það bil. Afganginum verði náð inn í gegnum auknar tekjur. Steingrímur segir að ítarlegri skýrslu verði skilað til þingsins í aðdraganda fjárlagagerðar, líkt og gert var í fyrra. Þar sé bæði tekið á fjárlagafrumvarpi næsta árs, en líka áætlun og stöðu í heild. „Við reiknum ekki með sambærilegum skattabreytingum og í fyrra, í aðalatriðum verða sömu skattstofnar keyrðir áfram með svipaðri útfærslu. Frekar verður horft til sértækari tekjuöflunaraðgerða."kolbeinn@fréttabladid.is
Mest lesið Óku á yfir 60 og missa ökuréttindin Innlent Málið týndist í kerfinu og reyndist á endanum fyrnt Innlent Hreinsanir hafnar í Íran Erlent Steini frá Straumnesi látinn Innlent Twitter-morðinginn tekinn af lífi Erlent Stjúpsonur norska krónprinsins grunaður um nauðganir Erlent Sagði Sean Combs ekki virða svarið „Nei“ Erlent Telja Múmínlundinn klárt brot á höfundarétti Innlent Standa saman gegn „óskiljanlegri“ ósk Vegagerðarinnar Innlent Ákærð fyrir að frelsissvipta dreng eftir dyraat Innlent Fleiri fréttir ÖBÍ greiðir málskostnaðartryggingu Jakubs Tilraun langtímakjarasamninga hafi mistekist Málið rannsakað sem tilraun til manndráps Telja Múmínlundinn klárt brot á höfundarétti Glænýr leikskóli í Mosfellsbæ heitir Sumarhús Verðbólguvonbrigði, hraðakstur og kokkur með keppnisskap Málið týndist í kerfinu og reyndist á endanum fyrnt Segulómtækið enn óvirkt og beðið eftir þúsund lítrum af helíni „Allar kannanir eru með einhverja óvissu“ Steini frá Straumnesi látinn Áfram frestað meðan formenn funda Birgir Ármannsson kominn með málflutningsréttindi Þingmenn ekki svo heppnir að fá tvöföld laun Standa saman gegn „óskiljanlegri“ ósk Vegagerðarinnar Helgi leiðir nefnd um atvinnumál í Norðurþingi Nú má heita Kareem Link Baggio og Anóra Vava Star Kerfið bilaði og atkvæði greidd upp á gamla mátann Ánægja með gjaldfrjálsar skólamáltíðir en fjármögnunin áskorun Verðbólga eykst og Alþingi í óvissu Gerðu úttekt á skrifstofu Ríkissáttasemjara Stærsti árgangur sögunnar fer í framhaldsskóla: „Það verður þétt setið í skólastofunni“ Flakk á fylginu og brunamótamatið vanáætlað Lögregla varar við „Nígeríubréfum“ og öðrum netglæpum Veita engar upplýsingar um tilboðið í Háholt Nýju tilboði í Háholt svarað með gagntilboði Tilkynningum til barnaverndar fjölgaði um tíu prósent árið 2024 Tveir skjálftar úti á Reykjaneshrygg Innbrot á veitingastað og grunur um íkveikju í bifreið Veik stofnun skaði fjárhag ríkissjóðs Barnasáttmálinn verið þverbrotinn í barnvænu sveitarfélagi Sjá meira