Óttast yfirtöku innflytjenda í Svíþjóð 13. nóvember 2010 06:00 Fjölmiðlar hafa greint frá því að Mangs sé með Aspergerheilkenni sem flokkast með einhverfu.mynd/afp
Peter Mangs, 38 ára Svíi sem er grunaður um eitt morð og nokkrar skotárásir í Malmö undanfarið ár, óttast að innflytjendur muni yfirtaka sænskt samfélag, er haft eftir föður hans í netútgáfu sænska blaðsins Aftonbladet. Mangs er jafnframt grunaður um morð sem framin voru í nágrenni borgarinnar árið 2003. Sænsk lögregluyfirvöld gefa takmarkaðar upplýsingar um Mangs sem var handtekinn fyrir viku. Aldur hans hefur verið staðfestur en myndbirtingar fjölmiðla eru harðlega gagnrýndar þar sem lögregla telur þær torvelda rannsókn málsins. Mangs neitar sök en samkvæmt sænskum fjölmiðlum hefur lögreglu tekist að tengja annað af tveimur skotvopnum sem fundust á heimili hans við árásirnar. Eins og komið hefur fram eru árásirnar í öllum tilvikum, nema einu, gegn fólki af erlendum uppruna. Þá var ungur Svíi skotinn í bíl sínum. Farþegi í bílnum var af erlendum uppruna. Alls eru fimmtán skotárásir til rannsóknar. Mangs er grunaður um aðild að átta árásum hið minnsta. Árásirnar hófust í október. Síðan þá hefur verið ráðist á fólk fyrirvaralaust við daglegar athafnir. Eitt fórnarlamb var skotið í gegnum rúðu á líkamsræktarstöð. Aðrir hafa verið skotnir við strætóbiðstöðvar og í bílum sínum. Ráðist hefur verið á fólk við bænastaði múslíma. Í síðasta mánuði flúði árásarmaðurinn á reiðhjóli eftir átök við fórnarlamb sitt; hárgreiðslumann frá Íran. Morðin árið 2003 eiga margt sammerkt með skotárásunum í Malmö undanfarna mánuði. Mennirnir, sem voru 66 ára og 23 ára, tengdust ekki á neinn hátt og voru skotnir í og við heimili sín. Báðir voru skotnir með 9 millimetra skammbyssu. Hins vegar var eldri maðurinn rændur ólíkt þeim yngri sem fannst með seðlaveski sitt á sér. Haustið 1991 fór maður að nafni John Ausonius um Stokkhólm og Uppsali og skaut ellefu, myrti einn og særði hina alvarlega. Í fyrstu notaði hann riffil með leysigeislamiði og var kallaður Lasermaðurinn. Fjölmiðlar hafa notað svipaða nafngift vegna árásanna nú, enda svipar þessum tveimur málum mjög saman. Skotárásirnar hafa haldið íbúum Malmö í heljargreipum á undanförnum mánuðum. Um 290 þúsund manns búa á svæðinu. Einn af hverjum þremur er af erlendum uppruna og er aðskilnaður þjóðarbrota, sem talin eru vera um 170 í borginni, mikill. svavar@frettabladid.is
Mest lesið Hljóp inn í brennandi byggingu til að bjarga nágrannanum Innlent „Hættulegasti maður Noregs“ fannst látinn í fangaklefa Erlent Svona mun Suðurlandsbraut líta út Innlent Hótaði málþófi vegna veiða sem tengdasonurinn stundar Innlent Tæplega þrjátíu prósent Tesla Y þurftu í endurskoðun Innlent Saksóknarar hóta uppreisn í Minneapolis Erlent Óvissustigi lýst yfir vegna snjóflóðahættu Innlent Sveitarstjóra ekki heimilt að banna hundahald Innlent Afi fór ekki yfir strikið með meintri rassskellingu Innlent „Við eigum ekki að vera hrædd við að taka umræðuna“ Innlent Fleiri fréttir Myndbirtingar á börnum geta skapað hættu Óvissustigi lýst yfir vegna snjóflóðahættu „Muni ekki valda neinu öðru en umferðaröngþveiti“ „Mér þykir leiðinlegt að þetta gangi ekki betur“ Hafði aldrei heyrt um handbolta fyrr en hún kynntist handboltaóðu þjóðinni Auglýsa forskráningu í skóla í Grindavík Segir ekkert náttúrulögmál að bílasalar þurfi að velta hækkunum út í verðlagið Þrjár hlutu heiðursverðlaun Fimm handteknir grunaðir um skipulagðan þjófnað Ráðherra situr fyrir svörum, gleðitíðindi og konan sem hafði aldrei heyrt um handbolta Seinka sýningum fyrir leikinn Óbirt svör og starfslokin tekin fyrir Tæplega þrjátíu prósent Tesla Y þurftu í endurskoðun Mikil andstaða við nýtt 160 herbergja hótel á Laugarvatni Á fjórða hundrað vilja á lista Sjálfstæðisflokks í Reykjavík Hótaði málþófi vegna veiða sem tengdasonurinn stundar Svona mun Suðurlandsbraut líta út Kannast ekki við tilraunir til að stofna nýtt Vélfag Ljósið flytur í Grafarvog Launin lækkuð um 97 prósent en ekki afnumin „Við eigum ekki að vera hrædd við að taka umræðuna“ Pallborðið: Aðstoðarmenn, bæjarstjóri og viðskiptafræðingur Viðreisnarfélögum fjölgað um helming fyrir prófkjör Afi fór ekki yfir strikið með meintri rassskellingu Guðjón endurkjörinn og Simon líka Mannabreytingar samráðsfunda eins og tiltekt á jólakortalista Óttast vaxtahækkanir vegna sleggjunnar sem stjórnvöld „fengu í trýnið“ Verðbólgan eykst en loðnan gleður Bein útsending: Opinn fundur um áfallaþol Íslands Sakar mótframbjóðanda um trúnaðarbrest og kallar eftir prófkjöri Sjá meira