Fleiri fremja sjálfsvíg en deyja í bílslysum Erla Hlynsdóttir skrifar 10. september 2010 12:32 Aðstandendur fleyttu einnig kertum á Tjörninni á síðsta ári Mynd: Anton Brink „
Ungmenni gera sér oft ekki grein fyrir endanleikanum sem felst í því að taka eigið líf. Það er alltaf hægt að fá nýtt líf í tölvuleikjum. Við höfum heyrt frá krökkum sem var bjargað á síðustu stundu að þau eru ákaflega þakklát og segjast ekki skilja hvað þau hafi verið að hugsa," segir Salbjörg Bjarnadóttir, verkefnisstjóri Þjóðar gegn þunglyndi.Kertum fleytt á Tjörninni Í dag er alþjóðlegur dagur sjálfsvígsforvarna og af því tilefni verður haldin kyrrðarstund í Dómkirkjunni klukkan átta. Að lokinni athöfn í kirkjunni verður gengið niður að Tjörninni þar sem kertum verður fleytt til minningar um þá er fallið hafa frá fyrir eigin hendi. Hver og einn fær kerti til að minnast síns nánasta. Þetta er viðkvæm stund fyrir marga en hefur tekist mjög vel þau tvö ár sem við höfum haldið þetta. Kyrrðarstundin er alls ekki trúarlegs eðlis þó hún sé haldin í kirkju. Þetta er bara fallegur staður og fólki hefur þótt dýrmætt að geta komið þarna saman," segir Salbjörg.Færri deyja í bílslysum Þrír til fjórir fremja sjálfsmorð að meðaltali í hverjum mánuði. Yfir árið hafa mest 37 tekið eigið líf hér á landi. „Fleiri falla fyrir eigin hendi en deyja í bílslysum. Samt er mun minna rætt um þetta en bílslysin. Þessi mál hafa verið þögguð niður en við vonumst til að geta opnað umræðuna," segir hún.Sitja uppi með sektarkennd Að sögn Salbjargar er sérstaklega mikilvægt að hjálpa aðstandendum þeirra sem hafa framið sjálfsmorð því oft sitja þeir uppi með mikla sektarkennd. „Við erum að reyna að fá fólk til að hugsa um að sá sem tekur eigið líf ber alltaf ábyrgðina. Sjálfsvíg er mikill harmleikur og aðstandendur finna fyrir alls konar erfiðum tilfinningum. Fólk verður að vinna úr þessu. Sumir geta gert það með sínum nánustu en aðrir þurfa að leita sér hjálpar fagaðila. Við viljum vekja athygli á því hvernig fólk getur unnið úr þessari reynslu," segir Salbjörg. Hún bendir á að þeir sem byggja sorgina inni geti sjálfir orðið þunglyndir og því mikilvægt að fólk tali opinskátt um tilfinningar sínar.Aðstandandi segir frá reynslu sinni Þetta er í þriðja sinn sem alþjóðadagur sjálfsvígsforvarna er haldinn hér á landi og er kyrrðarstundin í kvöld er á vegum þjóðkirkjunnar, Landlæknisembættisins, geðsviðs Landspítala, Geðhjálpar og Hugarafls. Elín Ebba Gunnarsdóttir, rithöfundur og aðstandandi, segir þar frá reynslu sinni. Bergþór Böðvarsson, fulltrúi notendaþjónustu geðsviðs Landspítalans, les upp og séra Sigfinnur Þorleifsson flytur hugvekju.
Mest lesið Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Innlent Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Innlent Banaslys í Þrengslunum Innlent Ljóst hvar sólin verður um Versló og hvar ekki Innlent Flugmaðurinn er fundinn Innlent Stór skjálfti á Nesjavöllum Innlent „Uppáhaldið“ hans Epsteins mun erfa veldið Erlent Rennibraut vélarinnar hafi virkjast á flughlaði Innlent Ekki gott að möguleg lögbrot hafi fengið að malla árum saman Innlent Lilja Rafney syrgir eiginmann sinn Innlent Fleiri fréttir Varanlegar undanþágur hluti af ESB frá upphafi Snýr aftur á spítalann í skugga kæru til Landsréttar Flugmaðurinn er fundinn Sækja slasaðan göngumann á Esjuna „Fólk er ekki heimskt“ Sorglegt að ekki hafi tekist að vernda konuna Ljóst hvar sólin verður um Versló og hvar ekki Varði helginni á spænskri fjöldahjálparstöð Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Lilja Rafney syrgir eiginmann sinn Fluttur til Danmerkur með alvarleg brunasár Banaslys í Þrengslunum Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Skjálftinn fannst í Grundarfirði og Búðardal Lá á bjöllunum og endaði á því að brjótast inn Stór skjálfti á Nesjavöllum Rennibraut vélarinnar hafi virkjast á flughlaði Ekki gott að möguleg lögbrot hafi fengið að malla árum saman „Fólk bara fór í hina úlpuna sína og brosti“ Umræða í hnút: Hann segir, hún segir, þarna stendur... hvað er rétt? „Alltaf tortryggin gagnvart boði um gull og græna skóga“ „Eins og einhverjir fávitar á gólfinu, korter í að grenja“ Hafi sagt að ekki mætti gefa svo mikið morfín en gerði það samt Strandaglópar á Spáni og vont veður á Brennslunni Fjölskyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt Fokin tjöld og slagsmál á Bræðslunni Fluttur á bráðamóttökuna eftir vinnuslys í Kópavogi Evrópumálin, sala áfengis og kjarasamningar á Sprengisandi Stærsta rafflugvélin fær grænt ljós á fyrsta flug Hvassviðri hefur sett strik í reikninginn á Bræðslunni Sjá meira