Sigmundur Ernir var leikinn af Ljótum hálfvita 5. janúar 2010 06:00 Stjörnur skaupsins. Hannes Óli Ágústsson og Sævar Sigurgeirsson eða Sigmundur Davíð og Sigmundur Ernir.Fréttablaðið/Gva „
Ég fattaði ekki hversu vel ég náði honum fyrr en ég sá prufuefni. Þá brá mér allsvakalega!,“ segir Hannes Óli Ágústsson, sem fór á kostum sem Sigmundur Davíð Gunnlaugsson í Skaupinu. Sjálfur sagði Sigmundur Davíð í viðtali að það væri skrítið að feitasti leikarinn léki hann alltaf. „Ég veit alveg að ég er smá í holdum, en hann er greinilega í einhverri afneitun,“ segir Hannes Óli og hlær. Hann útskrifaðist úr leiklistardeild Listaháskólans síðasta vor og segist vera búinn að „snapa djobb“ síðan, leikur meðal annars ökukennarann í Bjarnfreðarsyni. Auk Hannesar Óla kom Sævar Sigurgeirsson vel út úr Skaupinu í hlutverki Sigmundar Ernis. „Þegar ég sá hann fyrst á settinu hélt ég að þetta væri í alvöru Sigmundur Ernir og fannst sniðugt hjá leikstjóranum að fá hann sjálfan til að leika!“ segir Hannes Óli. Sævar segir að mörgum hafi fundist hann dæmalaust líkur Sigmundi Erni. „Ég er einn af höfundum skaupsins og við vorum að skrifa það þegar mál Sigmundar stóð sem hæst. Svo var ég á fundi út af vinnunni minni [Sævar vinnur á auglýsingastofu] og sest á móti virðulegum forstjóra úti í bæ. Sá segir: „Heyrðu, ert þú eitthvað skyldur Sigmundi Erni? þú ert svo líkur honum!“ Ég var eitthvað að grínast með þetta við Gunnar leikstjóra daginn eftir, að ég væri bara kominn með hlutverk – og svo gekk það bara eftir!“ Sævar er ekki menntaður leikari en hefur verið viðloðandi leiklistina frá níu ára aldri, mikið með leikhópnum Hugleiki. Hann er að auki einn af Ljótu hálfvitunum. Hann segir Sigmund Erni sjálfan ekkert hafa tjáð sig um eftirhermuna við sig en það munaði oft mjóu að „Sigmundarnir“ mættust á tökustað. „Við vorum að taka upp á Austurvelli þegar hann gengur nánast inn í senuna,“ segir Sævar. „Allt tökuliðið lá í kasti, en ég sem geng með gleraugu dags daglega tók ekki eftir neinu. Aðeins seinna var ég í rútunni nýkominn í gervið og þá labbaði hann framhjá. Ég gat náttúrlega ekkert annað gert en að henda mér ofan í sætið.“- drg
Mest lesið Hafi ekki sjálfur sparkað Macklemore: „Ég myndi aldrei bregðast aðdáendum“ Lífið Amanda Seyfried og Thomas Sadoski skilin Lífið Hundrað ára virðulegt setur með grænu baði og gufu Lífið Macklemore tjáir sig: „Fólk er drepið í dag og fólk verður drepið á morgun“ Lífið Æstir í nektarmyndir Mörthu Stewart Lífið Friðrik Þór og Jóna Vigdís ástfangin Lífið Varkár Magga Bjarna fyllti Tjarnarbíó Menning Flippuðust og fáklæddust á Emmy-hátíðinni Tíska og hönnun Bob Mackie er látinn Lífið Prjónaæði grípur um sig meðal Íslendinga Lífið samstarf Fleiri fréttir Amanda Seyfried og Thomas Sadoski skilin Hafi ekki sjálfur sparkað Macklemore: „Ég myndi aldrei bregðast aðdáendum“ Hundrað ára virðulegt setur með grænu baði og gufu Bob Mackie er látinn Friðrik Þór og Jóna Vigdís ástfangin Macklemore tjáir sig: „Fólk er drepið í dag og fólk verður drepið á morgun“ Æstir í nektarmyndir Mörthu Stewart Vakna við Star Wars-lagið alla morgna Hvað veistu um… Titanic? Húðdrottning bauð í gellugusu Ed Sheeran sparkar Macklemore Hið alræmda „Epstein drap sig ekki“-samsæri Ein pilla dró Panettiere til dauða Heldur sig til hlés og lifir skírlífi Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum „Ég byrjaði að lesa kaflann og fór bara að gráta“ Skúli Jón og Jennifer gengin í hnapphelduna Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Áskell Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Sjá meira