Innlent

Kannabisræktun stöðvuð á tveimur stöðum

Úr safni.
Úr safni. Mynd/Stefán Karlsson
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í Reykjavík og Kópavogi í gær. Við húsleit í bílskúr í austurborginni í hádeginu var lagt hald á tæplega 100 kannabisplöntur, 30 grömm af marijúana og lítilræði af hassi. Á sama stað tók lögreglan í sína vörslu tölvu, flatskjá og skjávarpa en grunur leikur á að um þýfi sé að ræða.

Þá stöðvaði lögreglan einnig kannabisræktun í iðnaðarhúsnæði í Kópavogi um miðjan dag. Við húsleit á áðurnefndum stað var lagt hald á tæplega 50 kannabisplöntur og nokkurt magn gróðurhúsalampa.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×