Innlent

Nýr skóli fyrir starfsmenn stjórnarráðsins

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Starfsmenn stjórnarráðsins eru á leiðinni í skóla. Mynd/ Pjetur.
Starfsmenn stjórnarráðsins eru á leiðinni í skóla. Mynd/ Pjetur.
Forsætisráðuneytið ætlar að setja á fót sérstakan Stjórnsýsluskóla Stjórnarráðsins. Með því á að efla endurmenntun og þjálfun starfsmanna ráðuneytanna. Í skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis sem út kom fyrr á árinu var lögð á það áherslu að fjölga þyrfti í þeim hópi starfsmanna Stjórnarráðsins sem eru vel menntaðir og þjálfaðir og hafa getu til að takast á við mjög flókin og krefjandi verkefni.

Fyrsta verkefni Stjórnsýsluskólans er að skipuleggja námskeið sem haldið yrði á sex mánaða fresti fyrir alla nýja starfsmenn í Stjórnarráðinu. Þar yrði gefið yfirlit yfir starfsemi Stjórnarráðins, hlutverk þess og vinnuaðferðir, lagalega umgjörð, fjárlagaferlið, þátttöku í samstarfi innan Evrópska efnahagssvæðisins, uppbyggingu stjórnsýslunnar, lög sem um hana gilda og réttindi og skyldur starfsmanna.

Stjórnsýsluskóli fyrir starfsmenn ríkis og sveitarfélaga er starfræktur í mörgum nágrannalanda okkar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×