Innlent

Hlutfall frumkvöðla hæst á Íslandi

Um 11,4% Íslendinga á aldrinum 18-64 ára, eða um 22 þúsund manns, taka þátt í frumkvöðlastarfsemi. Þetta eru niðurstöður alþjóðlega rannsóknarsamstarfsins Global Entrepreneurship Monitor (GEM), sem er umfangsmesta samanburðarrannsókn í heimi á frumkvöðlastarfsemi. Þetta er hæsta hlutfall frumkvöðla í þeim hagkerfum sem Íslendingar bera sig saman við.

Þá benda niðurstöður til þess að karlar séu um tvisvar sinnum líklegri en konur til þess að taka þátt í frumkvöðlastarfsemi, að frumkvöðlar á Íslandi séu eldri en í samanburðarlöndunum og að líkur á því að einstaklingar stundi frumkvöðlastarfsemi aukast með meiri menntun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×