Öll ráðuneytin eiga að fylgja stefnu Vísindaráðs 30. október 2010 06:00 Menntamálaráðherra styður eflingu samkeppnissjóða í úthlutun opinberra framlaga til rannsókna og þróunarstarfs. Myndin tengist fréttinni ekki beint. Fréttablaðið/Vilhelm
Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra telur að stefna eigi að því að hlutfall opinberra fjármuna til rannsókna og þróunarstarfs fari að meira leyti í gegnum samkeppnissjóði en nú er gert. Hún segir það opinbera stefnu stjórnvalda og telur að öll ráðuneyti ættu að fylgja þeirri stefnu. „Þetta er stefna Vísinda- og tækniráðs, sem er sá aðili sem markar stefnu stjórnvalda,“ segir Katrín í samtali við Fréttablaðið. „Hlutur samkeppnissjóða hefur verið að aukast undanfarið þótt það hafi ekki alfarið komið til af góðu. Samkeppnissjóðir hafa verið skornir niður um fjögur prósent síðustu þrjú ár á meðan framlög til háskóla hafa verið skorin niður um sextán prósent. Það sýnir okkar forgangsröðun, en við vildum helst sjá þetta hlutfall fara upp í um það bil þriðjung, sem er svipað og er í nágrannalöndum okkar.“ Eins og fram hefur komið í Fréttablaðinu upp á síðkastið hefur fyrirkomulag rannsóknarsjóða og opinberra framlaga til rannsókna og þróunarstarfs sætt gagnrýni í fræðasamfélaginu. Þar er kallað eftir því að fjármunum sé dreift í gegnum samkeppnissjóði. Það felur í sér að óháð faglegt ráð, skipað alþjóðlega viðurkenndum vísindamönnum, meti umsóknir um styrki og fylgi því eftir með mati á verkefnunum, sem sé svo lagt til grundvallar þegar viðkomandi sæki um styrki að nýju. Sérstaklega hafa spjótin staðið á Jóni Bjarnasyni, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, sem hefur tæplega 2,4 milljarða króna til rannsóknarstarfs. Þar af renna um 1,3 milljarðar til Hafrannsóknastofnunar, en afgangurinn fer meðal annars í gegnum hina ýmsu sjóði. Í svari við fyrirspurn Fréttablaðsins fyrr í mánuðinum sagði Jón að ekki stæði til að breyta fyrirkomulaginu, til dæmis með því að færa sjóðina undir Rannsóknarsjóð. Með núverandi skipulagi væri „stuðlað að beinni tengingu við atvinnuvegina“, sem væri í samræmi við óskir aðila í sjávarútvegi og landbúnaði, og ráðuneytið styddi þeirra sjónarmið. Katrín segir hins vegar að stjórnvöld skuli fylgja sömu stefnu hvað varðar framlag til rannsókna og þróunarstarfs, óháð ráðuneytum. „Ég lít á það þannig. Í Vísinda- og tækniráði sitja margir ráðherrar. Þar er stefna stjórnvalda mótuð og það skiptir máli að fylgja því eftir.“ thorgils@frettabladid.is
Mest lesið Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Innlent Fleiri fréttir Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Sjá meira