Braut rúður í áfengisvímu 14. september 2010 11:16
Þrjú eignaspjöll voru tilkynnt lögreglunni í Vestmannaeyjum í vikunni sem leið og var í öllum tilvikum um að ræða rúðubrot. Tvö af þessum rúðubrotum eru talin upplýst en talið er að um sama aðila sé að ræða en hann var handtekinn á sunnudagskvöldið grunaður um að hafa brotið rúðu í Vosbúð. Þá er talið að hann hafi brotið rúðu að Vesturvegi 17b fyrr um daginn en í ljós kom að nokkrir ungir menn höfðu farið inn í húsið í heimildarleysi, en húsið mun vera óíbúðarhæft. Hinn handtekni fékk að gista fangageymslu lögreglu þar til víman rann af honum, en hann reyndist undir áhrifum áfengis þegar lögreglan hafði afskipti af honum og var að trufla umferð á Heiðarvegi. Í einu tilviki er ekki vitað um geranda en um að ræða rúðubrot í útidyrahurð að Foldahrauni 41 þann 10. september. Í ýmsu var að snúast hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum í vikunni sem leið en hins vegar ekki nein alvarleg mál sem komu upp. Frekar rólegt var í kringum skemmtistaði bæjarins og á þeim stöðum þar sem fólk kom saman. Eitthvað var um ágreining á milli aðila án teljandi vandræða. Eitt fíkniefnamál kom upp í vikunni sem leið en lögreglan hafði afskipti af aðila sem grunaður var um að vera með fíkniefni í fórum sínum. Við leit á heimili hans framvísaði hinn grunaði smáræði af kannabisefnum. Málið telst að mestu upplýst. Í vikunni var lögreglu tilkynnt um slys um borð í Ísleifi VE, en þarna hafði maður sem var að vinna við hreinsun í lest hrasað með þeim afleiðingum að hann fékk skurð á höfuð. Þurfti að sauma 8 spor til að loka sárinu. Einn ökumaður var stöðvaður vegna gruns um ölvun við akstur en hann var að koma af einum af skemmtistöðum bæjarins þegar lögreglan hafði afskipti af honum. Viðkomandi var sviptur ökuréttindum til bráðabirgða. Þá var einn ökumaður sektaður fyrir að aka án þess að hafa öryggisbeltið spennt.
Mest lesið Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Fleiri fréttir Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Sjá meira