Innlent

Hótaði leigjanda handrukkun

Maðurinn vísaði til handrukkunar í bréfi sínu til leigutakans.
Maðurinn vísaði til handrukkunar í bréfi sínu til leigutakans.
Rúmlega sextugur karlmaður hefur verið dæmdur í Héraðsdómi Reykjaness til að greiða hundrað þúsund krónur eftir að hann hafði hótað kvenkyns fyrrum leigjanda sínum „nútíma innheimtuaðgerðum“ greiddi konan ekki skuld sína. Í ákæru segir að maðurinn hafi sett bréf inn um bréfalúguna á heimili konunnar. Síðari hluti þess hljóðaði svo:

„Ef þú sérð ekki hvöt hjá þér að gera rétt fyrir þér sjálf og venjulegar innheimtuaðgerðir duga ekki til, verða að koma til aðrar aðgerðir sem því miður eru orðnar algengari á þessum tíma. Virðist sem við séum að snúa til Sturlungaaldar aftur sem er synd, en því miður virðast engar aðgerðir aðrar duga til fyrir visst fólk. Ég legg til að þú gangir frá þínum málum fyrir næstu mánaðamót, 30. apríl 2010. það eru engir samningar í boði. 420.000 kr. fyrir 23. apríl 2010. Annars verður gripið til „nútíma innheimtuaðgerða.“

Með bréfinu lét maðurinn fylgja blaðaúrklippu þar sem sagt var frá mönnum sem námu mann á brott af heimili hans og misþyrmdu honum.

- jss



Fleiri fréttir

Sjá meira


×