Innlent

Viðar Már Matthíasson skipaður hæstaréttardómari

Valur Grettisson skrifar
Viðar Már Matthíasson.
Viðar Már Matthíasson.

Viðar Már Matthíasson, prófessor við lagadeild Háskóla Íslands, hefur samkvæmt tillögu Ögmundar Jónassonar dómsmála- og mannréttindaráðherra verið skipaður dómari við Hæstarétt Íslands frá og með deginum í dag, 10. september 2010.

Aðrir umsækjendur um embættið voru:

Sigríður Ingvarsdóttir héraðsdómari,

Sigrún Guðmundsdóttir héraðsdómari,

og Þorgeir Örlygsson, dómari við EFTA-dómstólinn í Lúxemborg.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×