Innlent

Fyrsti réttardagur Sunnlendinga

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Fyrsti réttardagur Sunnlendinga er í dag, en réttað var í Hrunaréttum, Skaftholtsréttum í Gnúpverjahreppi og Fossrétt á Síðu.

Fréttavefur Sunnlenska hefur það eftir bændum hitti í Hrunaréttum og Skaftholtsréttum að fé komi vænt af fjalli enda hafi sumarið verið gott á afréttum. Um 6000 kindur eru í safni Hrunamanna en eitthvað minna hjá Gnúpverjum. Í Skaftholtsréttum virtist reyndar vera fleira fólk en fé, en réttirnar eru iðulega fjölsóttar.

Á morgun, laugardag, verður réttað í Reykjaréttum á Skeiðum, Skarftárrétt og Tungnaréttum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×