Krefjast frekari rannsókna á lífsýnum úr Bobby Fischer Valur Grettisson skrifar 10. september 2010 10:26 Frá útför Bobby Fischers.
Marilyn Young, móðir Jinky Young, vill frekari rannsóknir á lífsýnum úr skákmeistaranum Bobby Fischer. Lögmaður hennar krafðist þess í morgun í fyrirtöku málsins í Héraðsdómi Reykjavíkur. Líkamsleifar Bobby Fischers voru grafnar upp í sumar og úr þeim tekin lífsýni til þess að staðfesta hvort hann væri sannarlega barnsfaðir Marilyns. Niðurstöður rannsóknar sýndu að svo væri líklega ekki. Svo virðist sem Marilyn sé ósátt við niðurstöðuna og krefst því frekari rannsóknar á sýnunum. Samuel Estito, annar lögmaður Marylin, gagnrýndi hvernig staðið var að uppgreftrinum á líki Bobby Fischer í erlendum fjölmiðlum stuttu eftir niðurstöðuna. Hann sagði Þórð Bogason, íslenskan lögmann konunnar, hafa lýst því yfir of snemma að ekki væri grundvöllur til að halda faðernismálinu til streitu og gefur í skyn að Garðar Sverrisson, návinur Bobby Fischer, gæti hafa átt við líkið til að koma í veg fyrir að niðurstaða næðist í faðernismálinu. Lögmaður frænda Fischers, auk lögmanns meintrar eiginkonu Fischers, hafa krafist frávísunar á kröfu lögmanns Marilyns um frekari rannsóknir. Málflutningur um kröfuna fer fram í október. Svo mun dómari taka afstöðu til hennar. Athygli vekur að málið hefur nú verið að velkjast í dómskerfinu í þrjú ár. Deilan snýst um það hver sé réttmætur erfingi Fischers. Meðal annars er deilt um það hvort Mioko Watai sé raunverulega eiginkona Fischers. Síðar blandaðist Marilyn inn í málið og sagðist eiga með honum dóttur. Marilyn er frá Filippseyjum en Fischer og hún áttu í ástarsambandi um skeið. Ekki náðist í Þórð við gerð fréttarinnar.
Mest lesið Hopp segir mál ökumanns í höndum lögreglu Innlent Reki fyrirtæki og séu nálægt því að missa allt frá sér Innlent Klausturbleikjan fæst ekki lengur Innlent Sími undir dýnu á skiptiborði tengdur innflutningi amfetamínbasa Innlent „Skráningum rignir inn“ Innlent „Verulegur samdráttur og menn eru að segja upp mannskap“ Innlent Kristján allt annað en sáttur við typpadansinn Innlent Ný hreyfing mynduð gegn aðild að ESB Innlent Paradís Kushner ógn við aðildarviðræður Albaníu og ESB Erlent Dæmdur morðingi grunaður í Straumsvíkurmálinu Innlent Fleiri fréttir Hopp segir mál ökumanns í höndum lögreglu Reki fyrirtæki og séu nálægt því að missa allt frá sér Klausturbleikjan fæst ekki lengur Staðfestir stækkun friðlands við Gróttu og Seltjörn Fjórtán ný félög flytja í Mannréttindahúsið Sími undir dýnu á skiptiborði tengdur innflutningi amfetamínbasa Lokuðu götu á Ólafsfirði vegna tilkynningar um skotvopn Fylgi Sjálfstæðisflokks ekki meira í sex ár „Verulegur samdráttur og menn eru að segja upp mannskap“ „Skráningum rignir inn“ Eftirspurn eftir kókaíni virðist aldrei hafa verið meiri Staðfesta fjölskyldutengsl nú með DNA-rannsókn Nýtt innviðafélag hlýtur nafnið Göng og brú Ný hreyfing mynduð gegn aðild að ESB Kristján allt annað en sáttur við typpadansinn Dæmdur morðingi grunaður í Straumsvíkurmálinu Rannsókn í gangi á lengd dauðastríðsins Kókaínhaldlagningar komnar í 200 kíló á hálfu ári Tveimur sagt upp á Bifröst Enn eitt fíkniefnametið slegið og yfirvöld hvött til að afturkalla hvalveiðileyfi Rennibrautinni lokað og ljósin skoðuð Hvalur háði hálftíma dauðastríð Hanna Katrín eigi að standa með starfsfólki Hvals – ekki gagnrýna það Gómuð af tollinum með tvo lítra af kókaíni innvortis Komst á bragð skemmdarverka í baráttunni við Kristján Loftsson Mokgræðir á rafmyntum Séra Þórir Stephensen er látinn Féll fram af svölum á hjúkrunaheimili og lést Lögregla rannsakar tvö innbrot í miðborginni Sér Blönduós eflast með byggðalínu og virkjunum Sjá meira